Ákvörðun PFS vegna ágreinings um umsýslugjald vegna númera- og þjónustuflutnings
Ákvörðun PFS vegna ágreinings um umsýslugjald vegna númera- og þjónustuflutnings
Póst- og fjarskiptastofnun hefur birt ákvörðun sína nr. 9/2012 vegna ágreinings um umsýslugjald vegna númera- og þjónustuflutnings. Má rekja upphaf þessarar ákvörðunar til erindis Hringdu ehf. þar sem félagið óskaði m.a. eftir því við PFS að stofnunin framkvæmdi kostnaðargreiningu á númeraflutningum á Íslandi. Var ennfremur lagt til, af hálfu Hringdu, að PFS myndi banna fjarskiptafélögum að rukka fyrir staka númeraflutninga enda fæli sú aðgerð í sér aðgangshindrun inn á markaðinn, auk þess sem að númeraflutningar hefðu ekki beinan kostnað í för með sér. Að lokum óskaði Hringdu eftir því að PFS heimilaði Hringdu að innheimta endurgreiðslu frá fjarskiptafyrirtækjunum fyrir umskráningu.
Í ákvörðun sinni kemst PFS að þeirri niðurstöðu að þau gögn sem lögð hafi verið fram í máli þessu geti ekki verið grundvöllur breytinga á gjaldskrá viðkomandi félaga þar sem samræma þurfi forsendur og framkvæmd kostnaðargreininga svo að PFS sé kleift að leggja mat á kostnað við númerflutninga á Íslandi. PFS hyggst hins vegar beita sér fyrir því að gjaldtaka fyrir númeraflutning milli fjarskiptafyrirtækja verði kostnaðargreind á næstu misserum með samræmdum hætti.
Telur PFS ennfremur að umsýslugjald vegna númera- og þjónustuflutninga feli ekki í sér aðgangshindrun á markaði né sé það til þess fallið að hindra notendur í að nýta sér númera- og þjónustuflutning. Var kröfu Hringdu um endurgreiðslu á umsýslugjöldum vegna númera- og þjónustuflutnings vísað frá, auk þess sem PFS telur Hringdu óheimilt að synja fjarskiptafyrirtækjum um greiðslu umsýslukostnaðar. PFS fellst hins vegar á þá kröfu Hringdu að fjarskiptafyrirtæki skuli birta gjaldskrá vegna númera- og þjónustuflutnings, ef gjaldið er lagt á áskrifanda með beinum hætti.
Sjá ákvörðunina í heild:
Ákvörðun PFS nr. 9/2012 vegna ágreinings um umsýslugjald vegna númera- og þjónustuflutnings (PDF)