Hoppa yfir valmynd

PFS kallar eftir samráði: Umsókn RÚV um tíðniheimild fyrir stafrænt sjónvarp

Fréttasafn
02. mars 2012

PFS kallar eftir samráði: Umsókn RÚV um tíðniheimild fyrir stafrænt sjónvarp

Póst og fjarskiptastofnun (PFS) kallar eftir samráði við hagsmunaaðila vegna umsóknar Ríkisútvarpsins ohf. (RÚV) um tíðniheimild fyrir stafrænt sjónvarp.

Með minnisblaði dagsettu 27. febrúar 2012 sótti RÚV um tíðni á VHF og UHF tíðnisviðinu fyrir fyrirhugaðar stafrænar sjónvarpsútsendingar RÚV.  Í lögum um fjarskipti nr. 81/2003 segir m.a. um úthlutanir tíðna og númera: „Einnig má úthluta réttindum fyrir notkun tíðna til útvarpsstöðva að lokinni opinni og gegnsærri málsmeðferð án mismununar, enda þjóni slík úthlutun markmiðum stjórnvalda“, sbr. 2. mgr. 7. gr. laganna.

Í umsókn RÚV sem hér er til umsagnar kemur fram að fyrirhugað er að koma upp dreifikerfi fyrir stafræna sjónvarpsendingu á næstu tveimur árum.

Póst og fjarskiptastofnun (PFS) hefur í framhaldi af móttöku umsóknar RÚV ákveðið að efna til opins samráðs áður en ákvörðun um úthlutun tíðna til RÚV verður tekin til þess að tryggð verði gagnsæ málsmeðferð.

Frestur til að skila inn umsögnum og athugasemdum er til og með 15. mars 2012.

Umsagnir berist til til Póst- og fjarskiptastofnunar, Suðurlandsbraut 4, 108 Reykjavík eða á netfangið thorleifur(hjá)pfs.is. 

Nánari upplýsingar veitir Þorleifur Jónasson forstöðumaður tæknideildar PFS.

Sjá nánar: