Samráð við ESA um markaðsgreiningu á markaði 15 (aðgangur og upphaf símtala í almennum farsímanetum)
Samráð við ESA um markaðsgreiningu á markaði 15 (aðgangur og upphaf símtala í almennum farsímanetum)
Í dag sendi Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) til Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) drög að ákvörðun um niðurfellingu kvaða á Símann á heildsölumarkaði fyrir aðgang og upphaf símtala í almennum farsímanetum (markaður 15 í tilmælum ESA um viðkomandi markaði frá 2004).
Fyrirhuguð niðurstaða PFS er sú að ekkert fyrirtæki njóti umtalsverðs markaðsstyrks á viðkomandi markaði og hyggst PFS því afnema kvaðir á Símann á 6-12 mánuðum frá töku endanlegrar ákvörðunar.
Drög að ákvörðun á markaði 15 eru nú send til ESA og annarra eftirlitsstofnana á EES-svæðinu með vísan til 7. gr. laga nr. 69/2003 um Póst- og fjarskiptastofnun. ESA og aðrar eftirlitsstofnanir á EES-svæðinu hafa einn mánuð til að setja fram athugasemdir við ákvörðunardrögin. Eftir það getur PFS tekið ákvörðun um viðkomandi markað nema fram komi óskir frá ESA um að PFS dragi ákvörðunardrögin til baka.
Sjá nánar hér á vefnum: