PFS endurúthlutar tíðniheimildum fyrir farsímaþjónustu til næstu 10 ára
PFS endurúthlutar tíðniheimildum fyrir farsímaþjónustu til næstu 10 ára
Þann 14. febrúar sl. endurútgaf PFS tíðniheimildir fyrir farsímaþjónustu á 900 MHz og 1800 MHz tíðnisviðunum til næstu tíu ára, með ákveðnum undantekningum. Um er að ræða heimildir til Símans hf. og Fjarskipta ehf., á báðum tíðnisviðum og Nova ehf. og IMC Íslands ehf. á 1800 MHz tíðnisviðinu.
Í nýjum tíðniheimildum fyrir 1800 MHz er opnað á þann möguleika að tíðnisviðið nýtist jafnframt fyrir fjórðu kynslóðar farsímaþjónustu (LTE). Slíkt mun þó ekki verða mögulegt fyrr en að afloknu uppboði á lausum tíðnum á tíðnisviðinu. Stefnir stofnunin að því að halda slíkt uppboð á 1800 MHz og 800 MHz tíðnisviðunum síðar á árinu.
Tíðniheimildirnar á 1800 MHz tíðnisviðinu nú eru því gefnar út með fyrirvara um frekari skilyrði um útbreiðslu með tilliti til fjórðu kynslóðar farsímaþjónustu. Skal hún vera í samræmi við lágmarkskröfur sem mótaðar verða í skilmálum áætlaðs uppboðs.
Í tíðniheimildum fyrir 900 MHz tíðnisviðið er nýtingin bundin við GSM og UMTS þjónustu, þ.e. þriðju kynslóðar farsímaþjónustu.
Með endurútgáfu tíðniheimildanna nú er innheimt gjald á grundvelli bráðabirgðaákvæðis III í lögum, nr. 81/2003, um fjarskipti, sbr. lög, nr. 146/2010, um breytingu á lögum um fjarskipti nr. 81/2003, sem Alþingi samþykkti í desember 2010. Alls er um að ræða 115.700.000,- kr. sem renna munu í fjarskiptasjóð.
Nánari skýringar á forsendum PFS um framtíðarskipulag framangreindra tíðnisviða er að finna í niðurstöðuskjali samráðs sem fram fór á síðasta ári.
Útgefnar tíðniheimildir má skoða í töflu yfir skráð fjarskiptafyrirtæki með tíðniheimild hér á vefnum.