Framlengdur frestur til að skila umsögnum um drög að reglum um almenna heimild.
Fréttasafn
26. apríl 2004
Framlengdur frestur til að skila umsögnum um drög að reglum um almenna heimild.
Ákveðið hefur verið að framlengja frest til þess að skila umsögnum um drög að reglum um almenna heimild til fjarskiptastarfsemi. Fresturinn er framlengdur til 3. maí nk.
Þeir aðilar sem kjósa að senda inn umsagnir eru beðnir um að gera það bæði á skriflegu og rafrænu formi. Í dreifibréfi sem sent var með drögunum til allra fjarskiptafyrirtækja þann 26. mars sl. var gefið upp tölvupóstfangið pfs@pfs.is. Því miður er þetta tölvupóstfang ekki virkt og eru umsagnaraðilar því beðnir um að nota tölvupóstfangið sigurjon@pfs.is