Laust starf lögfræðings hjá PFS
Laust starf lögfræðings hjá PFS
Hjá Póst- og fjarskiptastofnun er laus til umsóknar staða lögfræðings. Lögfræðideild PFS ber ábyrgð á vinnslu stjórnsýslumála, lausn ágreiningsmála, álagningu og eftirfylgni kvaða sem leiða af ákvæðum fjarskipta- og póstlaga, auk þess sem hún veitir ráðgjöf um löggjöf og reglusetningu á fyrrnefndum réttarsviðum.
Starfssvið
Starf lögfræðings er m.a. fólgið í samningu álitsgerða og stjórnsýsluákvarðana, lögfræðilegri ráðgjöf, samskiptum við póst- og fjarskiptafyrirtæki og undirbúningi stjórnsýslureglna.
Menntun og reynsla
Embættispróf, ML í lögfræði eða sambærilegt próf. Þekking og starfsreynsla á sviði fjarskiptaréttar, stjórnsýsluréttar eða samkeppnisréttar er æskileg.
Almennar hæfniskröfur
Umsækjendur þurfa að hafa gott vald á og færni til að rita vandaðan texta á íslensku og ensku. Gerð er krafa um öguð og skipulögð vinnubrögð auk ríkulegrar samskiptafærni. Umsækjendur þurfa að eiga auðvelt með að starfa sjálfstætt sem og í hópi og jafnframt búa yfir þeim sveigjanleika og festu sem nauðsynleg er til að ná árangri í samskiptum við markaðsaðila á póst- og fjarskiptamarkaði.
Um er að ræða krefjandi starf sem reynir á lögfræðilega getu og kunnáttu. Starfið býður upp á möguleika á þátttöku í samstarfi við alþjóðasamtök og erlendar systurstofnanir í aðildarlöndum EES.
Umsóknarfrestur er til og með 31. ágúst nk.