Laust er til umsóknar starf sérfræðings í tæknideild Póst- og fjarskiptastofnunar
Laust er til umsóknar starf sérfræðings í tæknideild Póst- og fjarskiptastofnunar
Við leitum að öflugum sérfræðingi til liðs við tæknideild PFS. Sérfræðingur vinnur með öflugu teymi starfsmanna deildarinnar sem vinna náið saman að net- og upplýsingaöryggi ásamt skipulagi tíðnimála, úthlutun tíðna og númera, eftirliti með ljósvakanum o.fl.
Starfssvið
Eftirlit með reglum um net- og upplýsingaöryggi, skipulag tíðnimála, eftirlit með ljósvakanum ásamt stuðningi við störf annarra deilda. Þátttaka í innleiðingu gæðaferla tæknideildar er einnig mikilvægur þáttur í starfinu.
Menntunar og hæfniskröfur
Háskólapróf í verk – eða tæknifræði eða sambærileg menntun. Framhaldsnám eða starfsreynsla á sviði fjarskipta er kostur.
Umsækjendur þurfa að hafa gott vald á íslensku og ensku, búa yfir ríkulegri samskiptafærni ásamt öguðum og skipulögðum vinnubrögðum. Viðkomandi þurfa jafnframt að eiga auðvelt með að starfa sjálfstætt sem og í hópi og búa yfir sveigjanleika og festu sem nauðsynleg er í samstarfi við fjarskiptafélög á Íslandi.
Um er að ræða krefjandi starf í síbreytilegu og spennandi umhverfi þar sem gerðar eru miklar fagkröfur.
Umsóknarfrestur er til og með 20. mars n.k. Með umsókn skal fylgja ferilskrá ásamt viðeigandi prófgögnum í viðhengi. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Póst- og fjarskiptastofnun lítur svo á að umsókn gildi í 6 mánuði frá dagsetningu hennar, nema umsækjandi ákveði umsókninni skemmri gildistíma.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Þorleifur Jónasson, forstöðumaður tæknideildar, í síma 510 1505, thorleifur@pfs.is