Hoppa yfir valmynd

Fyrirhuguð úthlutun PFS á tíðninni FM100,5 MHz

Fréttasafn
26. október 2010

Fyrirhuguð úthlutun PFS á tíðninni FM100,5 MHz

Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) hefur móttekið umsókn fyrirtækisins ÚÍ1 ehf. um framlengingu á tíðniheimild vegna reksturs útvarpsstöðvarinnar Kanans á Suðvesturlandi á tíðninni FM100,5 MHz. Tíðninni var úthlutað til sama aðila í byrjun árs 2010, tímabundið til loka ágústmánaðar og síðar framlengd til loka október 2010.

Í samræmi við vinnureglur stofnunarinnar hefur verið lagt mat á staðsetningu sendis út frá truflanahættu, sendistyrk og mögulegri geislunarhættu, sérstaklega þar sem um er að ræða sendistað á einu af útivistarsvæðum höfuðborgarsvæðisins, þ.e. í Bláfjöllum. PFS hefur í hyggju að veita leyfið til ÚÍ1 ehf. tímabundið í eitt ár gegn því skilyrði að sendirinn verði færður frá núverandi stað á nýjan stað sem talinn er í öruggri fjarlægð frá vinnusvæði starfsmanna í Bláfjöllum og umferð skíðafólks en einnig lengra frá öðrum fjarskiptavirkjum á svæðinu.

Stofnunin bendir á að enn er nokkuð af lausum tíðnum fyrir FM útvarpssendingar á höfuðborgarsvæðinu, en erfitt er að gefa út tæmandi lista yfir hvaða tíðnir það eru þar sem það ræðst m.a. af staðsetningu sendis og sendistyrk.

Hafi hagsmunaaðilar eitthvað við úthlutunina að athuga gefst kostur á að senda athugasemdir til Póst- og fjarskiptastofnunar fyrir 5. nóvember 2010. Athugasemdir skal senda forstöðumanni tæknideildar PFS á netfangið thorleifur(hjá)pfs.is.