Ný reglugerð um yfirgjaldsþjónustu í tal- og farsímanetum
Ný reglugerð um yfirgjaldsþjónustu í tal- og farsímanetum
Birt hefur verið í Stjórnartíðindum ný reglugerð um yfirgjaldsþjónustu í tal- og farsímanetum, nr. 780/2010. Reglugerðin gildir um símtöl, SMS-skilaboð, MMS-skilaboð og aðra yfirgjaldsþjónustu í tal- og farsímanetum á sértilgreindum númerum og númeraröðum.
Yfirgjaldsþjónusta er virðisaukandi þjónusta með yfirgjaldi í tal- og farsímanetum sem boðin er af þjónustuveitanda og notandi tengist með símtali eða SMS/MMS-skilaboðum í sértilgreind símanúmer eða stuttnúmer í almennu tal- eða farsímaneti.
Markmið reglugerðarinnar er að auka neytendavernd í tal- og farsímaþjónustu að því er varðar yfirgjaldsþjónustu og jafnframt fyrirbyggja eins og kostur er hugsanlega misnotkun og svikastarfsemi í tengslum við slíka þjónustu. Neytendaverndin felst m.a. í því að hægt sé að læsa fyrir tiltekna flokka númera með yfirgjaldi, auk þess sem gert er ráð fyrir að tengingar á yfirgjaldssímtali séu rofnar komi ekki til samþykkis eða aðgerðar af hálfu kaupanda þjónustunnar eftir ákveðinn tíma meðan tengingin varir.
Sjá nánar: Reglugerð nr 780/2010