PFS birtir ákvörðun um höfnun þjónustuleiðar í Reiknivél PFS
PFS birtir ákvörðun um höfnun þjónustuleiðar í Reiknivél PFS
Póst- og fjarskiptastofnun hefur birt ákvörðun sína nr. 19/2010 um að hafna þjónustuleið í Reiknivél PFS. Reiknivél PFS er verkfæri fyrir neytendur þar sem þeir geta borið saman verð fyrir sambærilega þjónustu fjarskiptafyrirtækja. Stofnunin hafnaði því að taka þjónustuleið Vodafone, Talsímafjelag Valda&Freys (V&F), með í útreikningum reiknivélar PFS. Höfnunin byggði á því að þjónustuleiðin V&F væri ekki samanburðarhæf við aðrar þjónustuleiðir sem teknar væru með í útreikningum reiknivélarinnar vegna þeirra skilmála og kjara sem þjónustuleiðin býður upp á.
Í ákvörðun PFS segir m.a.:
Til að útreikningur reiknivélarinnar sé marktækur og gagnsær er mikilvægt að þær þjónustuleiðir sem þar eru bornar saman eru séu samanburðarhæfar. Þó svo þjónustuleiðin sé í boði fyrir alla verða viðskiptavinir þjónustuleiðarinnar V&F að skuldbinda sig til að taka á móti auglýsingum í símann sinn og fá í staðinn 1000 kr. inneign mánaðarlega. Inneignin er því í boði auglýsenda, eins og segir í skilmálum fyrir þjónustunni, og viðskiptavinir verða að samþykkja að fá auglýsingar í símann sinn vilji þeir nýta sér þjónustuleiðina V&F. Inneignin sem viðskiptavinur fær mánaðarlega er í boði þriðja aðila og er því í raun endurgjald fyrir að taka á móti auglýsingum. Slíku fyrirkomulagi er ekki fyrir að fara varðandi aðrar þjónustuleiðir sem bornar eru saman í reiknivélinni. Það er því mat PFS að ef þjónustuleiðin V&F yrði tekin með í útreikninga reiknivélarinnar myndi það gefa skakka mynd í samanburðinum við önnur farsímafyrirtæki vegna þeirrar inneignar sem viðskiptavinur fær greidda inn á síma sinn mánaðarlega gegn því að taka á móti auglýsingum í símann, þar sem það myndi hvergi koma fram í reiknivélinni að inneignin sé í boði þriðja aðila.
Og fjarskipti ehf. (Vodafone) óskaði eftir því við Póst- og fjarskiptastofnun að stofnunin tæki formlega og kæranlega ákvörðun varðandi þessa afstöðu stofnunarinnar og hefur hún nú verið birt.
Sjá ákvörðunina í heild:
Ákvörðun PFS nr. 19/2010 um höfnun þjónustuleiðar í Reiknivél PFS