Síminn hættir rekstri NMT farsímakerfisins hér á landi
Síminn hættir rekstri NMT farsímakerfisins hér á landi
Þann 1. september næstkomandi mun Síminn hætta rekstri NMT farsímakerfisins hér á landi.
Mikil uppbygging hefur átt sér stað á GSM og UMTS (3G) kerfum fjarskiptafélaganna á undanförnum árum en það eru þau kerfi sem taka munu við þeirri þjónustu sem NMT farsímakerfið hefur þjónustað hingað til á landi og sjó.
Þar sem eðli hinnar nýju þjónustu er á margan hátt annað en NMT þjónustunnar er næsta víst að einhver örfá svæði ná ekki sömu dekkun og áður, á hinn bóginn er ljóst að í heildina er dekkun GSM og 3G kerfanna miklum mun viðameiri en NMT kerfisins nokkru sinni var til lands og sjávar sé miðað við handsímaþjónustu.
PFS vill benda notendum NMT kerfisins á að hægt er að flytja númerin sem hafa verið í notkun í NMT kerfinu yfir í GSM eða 3G þjónustu fjarskiptafélaganna.
Upplýsingar um þjónustusvæði fjarskiptafélaganna (í stafrófsröð) er að finna á eftirfarandi slóðum:
Nova:
http://www.nova.is/content/thjonusta/thjonustusvaedi/Innanlands.aspx?startpage=true
Síminn:
http://siminn.is/servlet/file/dreifikerfi_20jun2010-3G_3GL_sjoaskrift.pdf?ITEM_ENT_ID=146748
Vodafone (Og fjarskipti):
http://www.vodafone.is/live/staersta
Í ljósi þess að NMT tíðnisviðið losnar frá 1. September er það laust til umsóknar.