BEREC - Ný Evrópustofnun um samræmt fjarskiptaeftirlit
Fréttasafn
11. febrúar 2010
BEREC - Ný Evrópustofnun um samræmt fjarskiptaeftirlit
Í lok janúar sl. tók formlega til starfa ný stofnun innan Evrópusambandsins um samræmt fjarskiptaeftirlit í Evrópu. Stofnunin hlaut nafnið Body of European Regulators for Electronic Communications (BEREC). BEREC kemur í stað ERG (European Regulatory Group) sem áður var formlegur samstarfsvettvangur fjarskiptaeftirlitsstofnana í Evrópu.
Stjórn BEREC skipa forstjórar fjarskiptaeftirlitsstofna í 27 aðildarlöndum Evrópusambandsins, auk þess sem EFTA ríkin (Ísland, Noregur, Sviss og Lichtenstein), löndin þrjú sem nú eru í umsóknarferli inn í ESB (Tyrkland, Króatía og fyrrum Júgóslavíulýðveldið Makedónía) og fulltrúi framkvæmdastjórnar Evrópusambandins taka þátt í fundum stofnunarinnar sem áheyrnarfulltrúar.