Hoppa yfir valmynd

Nýtt mælingarmastur tekið í notkun

Fréttasafn
29. september 2005

Nýtt mælingarmastur tekið í notkun

Nýlega var myndarlegt mastur reist á þaki höfuðstöðva PFS að Suðurlandsbraut 4.

Með því er ætlunin að efla eftirlit með ljósvakanum, en samkvæmt lögum skal PFS stuðla að sem hagkvæmastri nýtingu tíðnirófsins og tryggja að skaðlegar truflanir á viðtöku þráðlausra merkja verði sem minnstar.

 

Mastrið er góð viðbót við mælingarbíl PFS. Það er vel staðsett í miðri borginni og stendur tiltölulega hátt. Því má ætla að árangur af mælingum verði mun betri og að hægt verði að grípa inn fyrr en ella.