Yfir 61.000 háhraðatengingar - nýtt tölfræðiyfirlit
Fréttasafn
26. september 2005
Yfir 61.000 háhraðatengingar - nýtt tölfræðiyfirlit
Nýtt tölfræðiyfirlit yfir íslenskan fjarskiptamarkað fram til júni 2005 er nú tiltækt á vefnum. Yfirlit yfir þróun á markaði er jafnan gert á hálfs árs fresti og byggir á upplýsingum frá fjarskiptafyrirtækjum. Athygli vekur aukning háhraðatenginga milli ára, en þær eru nú komnar yfir 61.000. Þá hefur Síminn aukið hlut sinn á innanlandssímtölum í fastaneti.