Hoppa yfir valmynd

Samræmd vefskil verðskrárupplýsinga

Fréttasafn
28. apríl 2023

Samræmd vefskil verðskrárupplýsinga

Mynd með frétt

Með 70. grein nýrra laga um fjarskipti, nr. 70/2022 er Fjarskiptastofu veitt heimild til að  framkvæma verðsamanburð á helstu verðum fjarskiptaþjónustu til neytenda eða að fela óháðum aðila að útbúa slíkan samanburð.

Í samræmi við lögin hefur FST útvistað verkefninu til vefsíðunnar Aurbjargar, sem hefur til þessa og á eigin vegum haldið úti samanburði á verðum farnetsþjónustu. Vefsíðan Aurbjörg er rekin af fyrirtækinu Two Birds ehf. í því markmiði að auka fjármálalæsi, auka gagnsæi og aðstoða neytendur við ákvarðanir. Ýmis þjónusta Aurbjargar er veitt gegn áskriftargjaldi, en umræddur verðsamanburður verður öllum opin.

Í reglum nr. 1244/2022 sem settar voru þann 2. nóvember 2022 er í 4. gr reglnanna Fjarskiptastofu heimilað að krefja fjarskiptafyrirtæki til að afhenda verðskrárupplýsingar gegnum vefskil með samræmdu sniðmáti.

Drög að reglunum voru auglýst til samráðs þann 6. október 2022. Samráð stóð yfir til 20. október 2022 en engar athugasemdir bárust.

Þann 11. janúar 2023 birti Fjarskiptastofa til samráðs drög að slíkum samræmdum vefskilum sem stóð til 27. janúar 2023. Unnið hefur verið úr innkomnum athugasemdum og eru vefskilin nú birt í lokaútgáfu þar sem tekið hefur verið tillit til athugasemda.

Fjarskiptafyrirtækjum sem veita almenningi fjarskiptaþjónustu er nú gefinn 60 daga frestur, eða til 26. júní 2023, til að útbúa sína hlið vefskilanna.

Aðgangur að vefskilum verðskrárupplýsinga hjá fjarskiptafyrirtækjum skal vera opinn þeim aðilum sem vilja útbúa og birta verðsamanburð fjarskiptaþjónustu á vefsíðum sínum, að uppfylltum eðlilegum öryggiskröfum sem um slíkan aðgang þurfa að gilda.

Lýsingu vefskilanna má nálgast hér : API_Specifications_Telecom_Services_v.1.0.pdf

Nánari upplýsingar veitir Guðmann Bragi Birgisson, gudmann@fjarskiptastofa.is