Íslenskur fjarskiptamarkaður í tölum - Tölfræðiskýrsla Fjarskiptastofu fyrir fyrri hluta ársins 2024 komin út
Íslenskur fjarskiptamarkaður í tölum - Tölfræðiskýrsla Fjarskiptastofu fyrir fyrri hluta ársins 2024 komin út
Tvisvar á ári safnar Fjarskiptastofa upplýsingum frá skráðum fjarskiptafyrirtækjum hér á landi um ýmsar stærðir í rekstri og þjónustu á sviði fjarskipta. Upp úr þeim tölum vinnur stofnunin tölfræðiskýrslur sem sýna upplýsingar um helstu stærðir og fyrirtæki á íslenskum fjarskiptamarkaði. Markmiðið er að bæta upplýsingagjöf og auka gagnsæi á þessum markaði og eru skýrslur stofnunarinnar í samræmi við þær skýrslur sem systurstofnanir Fjarskiptastofu í nágrannalöndum okkar gefa út.
Skýrslan sem nú er birt sýnir tölfræði um fjarskiptamarkaðinn fyrir fyrri hluta ársins 2024. Hún inniheldur tölulegar upplýsingar um helstu þætti á markaðnum og samanburð við stöðuna á árunum á undan. Skýrslan fyrir fyrri hluta ársins er styttri en sambærileg skýrsla fyrir heilt ár þar sem hún inniheldur ekki upplýsingar um fastanetið og veltu og fjárfestingu á fjarskiptamarkaði. Skýrslunni er skipt upp eftir farsímanetinu og föstum internettengingum.
Hægt er að skoða gögnin frá hinum ýmsu sjónarhornum á Gagnatorgi Fjarskiptastofu.
Gagnatorginu er skipt í 4 yfirflokka; farsímanet, breiðband, IPTV og fastanet og þar undir eru 9 flokkar sem hægt er að skoða útfrá t.d. tímabilum og þjónustuveitendum.
Meðal helstu tölulegu upplýsinga um íslenska fjarskiptamarkaðarins fyrir fyrri hluta ársins 2024 má nefna:
Heildarfjöldi farsímaáskrifta fjölgar milli ára eða um 1,5%. Fjölgun er í samningsbundnum áskriftum en fyrirfram greiddum áskriftum fækkar hins vegar. Fjöldi mínútna úr farsímum var 548 millj. mínútna á fyrri hluta ársins 2024 en var fyrir sama tímabil árið á undan um 545 millj. mínútna og fjölgar því fjöldi mínútna milli ára um 0,5%.
Gagnamagn á farsímaneti heldur áfram að aukast þótt dregist hafi úr aukningunni en hún var tæp 14,5% milli ára og eins og undanfarin ár er aukningin í tengslum við innleiðingu á 4G og 5G. Í farsímanetum er hlutfallslega meira gagnamagn notað í símum en í öðrum tækjum sem eru eingöngu fyrir gagnanotkun, t.d. spjaldtölvum eða 4G og 5G netbúnaði.
Internettengingum fjölgar lítillega milli ára, en mikil aukning er í ljósleiðaratengingum samhliða fækkun í xDSL tengingum, um mitt ár 2024 voru ljósleiðaratengingar tæp 91% allra internettenginga og er fjöldi ljósleiðaratenginga nú um 133 þús. tengingar.
Heildargagnamagn á fastaneti jókst um tæpt 1% milli ára og er um 90% gagnamagnsins vegna niðurhals en 10% vegna upphals.
Tölfræðiskýrslan í heild
Ásamt skýrslunni er birt Excel skjal með bakgrunnsupplýsingum skýrslunnar í töflum og myndum.