Fjarskiptastofa boðar til samráðs um breyttar forsendur og skilyrði fyrir uppbyggingu farneta á stofnvegum og nýtingu tíðnisviðs fyrir neyðar- og öryggisfjarskipti
Fjarskiptastofa boðar til samráðs um breyttar forsendur og skilyrði fyrir uppbyggingu farneta á stofnvegum og nýtingu tíðnisviðs fyrir neyðar- og öryggisfjarskipti
Fjarskiptastofa hefur birt drög að breyttum skilyrðum tíðniheimilda Nova, Símans, Sýnar og Öryggisfjarskipta. Breytingarnar byggja á niðurstöðum samráðs sem hófst í desember 2024 og taka mið af þeirri staðreynd að fjármögnun Öryggisfjarskipta í stofnvegaverkefninu liggur ekki fyrir og er ekki í augsýn.
Með fyrirhuguðum breytingum er gert ráð fyrir að draga úr umfangi verkefnisins þannig að kostnaður Nova, Símans og Sýnar aukist ekki miðað við það sem áður var áætlað þegar fjórir aðilar voru að verkefninu.
Meginmarkmið breytinganna er að tryggja öryggi vegfarenda með áframhaldandi útbreiðslu háhraða farnetsþjónustu á helstu stofnvegum, en dregið verður úr kröfum um uppbyggingu á hálendisleiðum og auknum hraðakröfum frestað.
Helstu atriði tillagnanna eru:
- Sprengisandsleið fellur út úr verkefninu, en aðrar hálendisleiðir verða áfram hluti af því.
- Útbreiðslukrafa verður 99% í árslok 2027 og 100% árið 2028, sem er seinkun um 2 ár.
- Kröfur um 30 Mb/s og 150 Mb/s hraða frestast um 5 ár.
- Heimilt verður að nota „utan-nets“ lausnir, þ.e. sjálfbæra litla sendastaði tengda gervihnöttum.
- Samnýting (MOCN) verður heimil á nýjum sendastöðum óháð umferðarmagni.
- Öryggisfjarskipti munu áfram leiða verkefnið að því er viðkemur skipulagi og staðavali en verður ekki fjárfestir.
Jafnframt eru lagðar til breytingar á tíðniheimild Öryggisfjarskipta til notkunar í neyðar- og öryggiskerfi á 700 MHz tíðnisviði, þar sem slakað verður á tímamörkum. Gert er ráð fyrir að á meðan uppbygging þess kerfis hefur ekki hafist, geti aðrir farnetsrekendur nýtt tíðnisviðið, að undangengnu samþykki Fjarskiptastofu og að uppfylltum skilyrðum um jafnræði og sanngjörn kjör.
Samráðsgögn og tillögur Fjarskiptastofu eru aðgengileg á vef stofnunarinnar.
Fjarskiptastofa óskar eftir sjónarmiðum allra sem telja sig hafa hagsmuni tengda þessu málefni. Þess er óskað að umsagnir berist FST eigi síðar en 14. apríl 2025.
Tekið er við skriflegum umsögnum á fjarskiptastofa(hjá)fjarskiptastofa.is og nánari upplýsingar veitir Sigurjón Ingvason, sigurjon(hjá)fjarskiptastofa.is