Endurskoðun á markaði fyrir staðaraðgang
- gr. Framkvæmd markaðsgreiningar
Fjarskiptastofa hefur tekið ákvörðun um endurskoðun á heildsölumarkaði fyrir staðaraðgang með fasttengingu (markaður 1, áður markaður 3a), í kjölfar breytinga á samkeppnisaðstæðum á tilteknum landfræðilegum mörkuðum. Ákvörðunin byggir á fyrri ákvörðun stofnunarinnar í máli nr. 5/2024 um útnefningu fjarskiptafyrirtækja með umtalsverðan markaðsstyrk og álagningu kvaða á þessum markaði.
Á árunum 2024 og 2025 keypti Míla staðbundin ljósleiðaranet í nokkrum sveitarfélögum, þar á meðal Eyja- og Miklaholtshreppi og Vestmannaeyjabæ. Í kjölfar kaupanna hefur Míla öðlast 100% markaðshlutdeild á viðkomandi landfræðilegum mörkuðum og telst því búa yfir umtalsverðum markaðsstyrk. Af þeim sökum verða kvaðir nú lagðar á Mílu í þessum sveitarfélögum á viðkomandi markaði.
Í Langanesbyggð keypti Tengir ljósleiðaranet Fjarskiptafélags Svalbarðshrepps, sem leiddi til þess að markaðshlutdeild Mílu dróst saman. Þá hefur samkeppni jafnframt aukist í Fjallabyggð og Sveitarfélaginu Vogum, meðal annars vegna aukinnar útbreiðslu ljósleiðaraneta Tengis og Ljósleiðarans.
Í ljósi þessara breytinga telur Fjarskiptastofa ekki lengur forsendur til að viðhalda kvöðum á Mílu í fyrrnefndum sveitarfélögum á viðkomandi markaði og verða þær felldar niður sex mánuðum eftir birtingu lokaákvörðunar.
Frumdrög að ákvörðuninni voru áður birt í innanlandssamráði á tímabilinu 15. desember 2025 til 19. janúar 2026. Athugasemdir bárust frá Mílu og Ljósleiðaranum, og er í viðauka I gerð grein fyrir helstu sjónarmiðum umsagnaraðila og afstöðu Fjarskiptastofu til þeirra.
Ákvörðunin var jafnframt tilkynnt til Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) og annarra eftirlitsstofnana á EES-svæðinu í samræmi við 28. gr. laga nr. 75/2021 um Fjarskiptastofu en samráðið stóð frá 20. maí til 18. júní 2026. Í því samráði bárust engar efnislegar athugasemdir við ákvörðunina.