Númer
2/2022
Heiti
Aðgerð Fjarskiptastofu vegna truflunar á fjarskiptum
Dagsetning
21.01.2022
Málsaðilar
Engir skráðir málsaðilar
Málaflokkur
Truflanir
Lagagreinar
- gr. Takmörkun fjarskipta vegna truflana eða sérstakra aðgerða.
Reifun
Síðustu ár hefur í auknum mæli borið á truflunum á farsímasambandi á SV- horni landsins. vegna bilunar í úreltum móttökubúnaði örbylgjuloftneta. Fjarskiptastofa hefur í samstarfi við fjarskiptafélögin staðið fyrir átaki til að finna þessar truflanir, og vinna bug á þeim í samráði við húseigendur.
Í ákvörðuninni kemur fram að starfsmenn Fjarskiptastofu hafa ekki náð tali af einum húseiganda og vinna bug á truflun sem stafar af loftneti á þaki hússins. Þá hefur fyrirmælum stofnunarinnar um úrbætur ekki verið sinnt. Stofnunin þarf því að grípa til einhliða aðgerða og fá fagaðila til að aftengja og fjarlægja örbylgjuloftnetið. Kostnaður sem fellur til vegna aðgerðanna verður eigandinn látinn bera, sbr. 3. mgr. 64. gr. fjarskiptalaga.
Tengt efni
Ekkert tengt efni skráð