Hoppa yfir valmynd
Ákvarðanir
Númer
13/2023
Heiti
Óumbeðin fjarskipti Lífeyrissjóðs verzlunarmanna
Dagsetning
22.12.2023
Málsaðilar
Engir skráðir málsaðilar
Málaflokkur
Óumbeðin fjarskipti
Lagagreinar
  1. gr. Óumbeðin fjarskipti
Reifun

Fjarskiptastofu barst kvörtun þar sem kvartað var yfir meintum óumbeðnum fjarskiptum Lífeyrissjóðs Verzlunarmanna í formi símtals, sem kvartandi taldi liður í markaðssetningu Lífeyrissjóðsins. Að mati Fjarskiptastofu verður ekki talið að símtal Lífeyrissjóðsins til kvartanda hafi sannanlega verið liður í markaðssetningu Lífeyrissjóðsins. Er Lífeyrisjóðurinn því ekki talinn hafa brotið gegn ákvæði 3. mgr. 94. gr. laga um fjarskipti nr. 70/2022.

Hins vegar við úrlausn málsins barst stofnuninni ýmis gögn er leiddu til þess að Fjarskiptastofa ákvað að sínu eigin frumkvæði að taka til umfjöllunar. Því tók stofnunin til umfjöllunar um það hvort að tölvupósturinn sem Lífeyrisjóðurinn sendi kvartanda kjölfarið af símtalinu, gæti talist sem liður í markaðssetningu Lífeyrissjóðsins og því væri um óumbeðin fjarskipti að ræða. Niðurstaða Fjarskiptastofu var sá að tilgangur tölvupóstsins væri liður í markaðssetningu í skilningi ákvæðisins og því hafi lífeyrissjóðurinn brotið gegn ákvæði 2. og  3. mgr. 94. gr. laga um fjarskipti nr. 70/2022.

Er Lífeyrisjóðurinn því ekki talinn hafa brotið gegn ákvæði 3. mgr. 94. gr. laga um fjarskipti nr. 70/2022 með símtali sínu en hins vegar hafi Lífeyrisjóðurinn brotið gegn ákvæði 2. og 3. mgr. 94. gr. laga um fjarskipti nr. 70/2022 með tölvupósti er sendur var í kjölfarið af símtalinu.

Tengt efni
Ekkert tengt efni skráð