Númer
10/2024
Heiti
Beiðni félags heyrnarlausra um að myndsímatúlkun falli undir reglur um alþjónustu.
Dagsetning
28.08.2024
Málsaðilar
Engir skráðir málsaðilar
Málaflokkur
Alþjónusta
Lagagreinar
- gr. Réttur til alþjónustu á viðráðanlegu verði
Reifun
Með ákvörðun nr. 10/2024 hafnaði Fjarskiptastofa kröfu Félags heyrnalausra um myndsímatúlkaþjónustu félli undir alþjónustuhugtakið og þar af leiðandi að þjónustan væri fjármögnuð sem slík.
Líkt og í ákvörðun Póst- og fjarskiptastofnunar nr. 20/2016 var niðurstaðan sú að slík kvöð yrði ekki lögð á fjarskiptafyrirtæki, eitt eða fleiri, án skýrrar lagaheimildar um að slík þjónusta falli undir alþjónustuhugtakið eða ákvörðun væri tekin um slíkt af ráðherra. Í fjarskiptalögum nr. 70/2022 og í alþjónustureglugerð nr. 1100/2022 væri ekki gert ráð fyrir að slík þjónusta yrði felld undir alþjónustu. Því var óhjákvæmilegt fyrir stofnunina að hafna kröfu félagsins.
Tengt efni
Ekkert tengt efni skráð