Úrskurður ÚFP í máli nr. 4/2024 - kæra Mílu á ákv. FST nr. 9/2024
- Stjórnvaldssektir
- gr. Eftirlitsúrræði og viðurlög
Úrskurðarnefnd fjarskipta- og póstmála hefur úrskurðað í kærumáli nr. 4/2024 um stjórnvaldssekt sem Fjarskiptastofa lagði á Mílu fyrir ranga og ófullnægjandi upplýsingagjöf félagsins til stofnunarinnar í tengslum við markaðsgreiningu á heimtauga- og bitastraumsmarkaði sem lokið var við á síðasta ári. Í úrskurði sínum staðfestir úrskurðarnefnd sektarákvörðun Fjarskiptastofu, sbr. ákvörðun nr. 9/2024, bæði að efni til og formi, þ.m.t. sektarfjárhæð að upphæð 3.000.000 kr.
Málavextir sektarmálsins voru á þá leið að þann 15. ágúst 2023 beindi Fjarskiptastofa fyrirspurn til Mílu hf., sem og annarra fjarskiptafyrirtækja, um möguleg kaupáform eða langtímaleigu á ljósleiðaranetum. Upphaflegu fyrirspurnina mátti skilja á þann veg að hún beindist eingöngu að staðbundnum ljósleiðaranetum á landsbyggðinni. Viðbrögð Mílu hf. voru á þann veg að óska eftir nánari skilgreiningu á gagnabeiðninni. Svar Fjarskiptastofu var á þá leið að óþarft væri að skilgreina einstök hugtök í þessu sambandi, þar sem beiðnin varðaði upplýsingar um möguleg kaup fjarskiptafyrirtækja á öllum ljósleiðaranetum á heimtaugamarkaði.
Var upplýsingabeiðnin því áréttuð út frá þessum almennu og skýru forsendum. Samskipti við Mílu héldu hins vegar áfram næstu daga og leiðbeiningar Fjarskiptastofu til félagsins virtust ekki skila árangri. Því taldi Fjarskiptastofa í tölvupósti frá 25. ágúst 2023 mikilvægt að skilgreina nákvæmlega hvað fælist í orðalagi um „kaupáform“, auk þess að enn var áréttað að beiðnin væri almenn og tæki til kaupa á öllum ljósleiðaranetum. Í sama tölvupósti var einnig leiðbeint um hvaða afleiðingar það hefði fyrir Mílu ef upplýsingabeiðninni yrði ekki svarað, en í því sambandi var félagið minnt á heimild Fjarskiptastofu til að leggja á fjarskiptafyrirtæki stjórnvaldssekt fyrir ranga og ófullnægjandi afhendingu á upplýsingum til stofnunarinnar. Míla staðfesti móttöku á tölvupósti stofnunarinnar og tjáði að málið yrði tekið til skoðunar, en engin frekari svör bárust hins vegar í framhaldinu.
Þann 15. september 2023 gerist það að Míla tilkynnir Fjarskiptastofu að sveitastjórn Skaftárhrepps hafi deginum áður samþykkt kauptilboð Mílu í ljósleiðaranet í eigu sveitarfélagsins og falið sveitarstjóra að undirrita samning við félagið. Í ljósi þess að þessi viðskipti virtust eiga sér stað á sama tíma eða mjög nálægt þeim tíma sem Mílu var skylt að upplýsa Fjarskiptastofa um öll áformuð kaup á ljósleiðaranetum taldi stofnunin fullt tilefni til þess að hefja rannsókn á því hvort félagið hefði mögulega brotið gegn upplýsingaskyldu sinni. Óskaði stofnunin eftir öllum viðkomandi samskiptum Mílu hf. við sveitarfélagið um þessi viðskipti.
Eftir að hafa yfirfarið þau gögn sem Míla afhenti kom m.a. í ljós formlegt bréf félagsins frá því í apríl 2023 til sveitafélagsins þar sem lýst var yfir áhuga á viðræðum um kaup á ljósleiðaranetinu og síðan formlegt kauptilboð til sveitarfélagsins frá því í júlí 2023. Það var mat Fjarskiptastofu að upplýsingar um þessi viðskipti féllu ótvírætt undir þá gagnabeiðni sem stofnunin hafði beint að Mílu hf. í ágúst það ár, sérstaklega undir þá afmörkun beiðninnar sem var nákvæmlega skilgreind með tölvupóstinum til félagsins frá 25. ágúst 2023. Mílu hafi ekki getað dulist að félaginu hafi verið skylt að upplýsa Fjarskiptastofu um þessi viðskipti sem þá voru í bígerð. Það var hins vegar ekki gert þrátt fyrir ítrekaðar leiðbeiningar af hálfu Fjarskiptastofu til Mílu og saknæmisstig háttseminnar því metið talsvert hátt. Því taldi Fjarskiptastofa óhjákvæmilegt annað en að leggja stjórnvaldssekt á Mílu fyrir brot á upplýsingaskyldu sinni til Fjarskiptastofu.
Eins og fyrr segir hefur þessi niðurstaða nú verið staðfest fyrir úrskurðarnefnd fjarskipta- og póstmála.