Kvörtun um notkun á vefkökum á vef RÚV ohf.
- gr. Leynd fjarskipta
Í 2. mgr. 88. gr. fjarskiptalaga er að finna ákvæði sem kveður á um vefkökur. Í 2. mgr. ákvæðisins er kveðið á um að notkun hvers konar kerfa og búnaðar, þ.m.t. hugbúnaðar, sem safnar og/eða geymir upplýsingar um athafnir eða samskipti notanda í endabúnaði hans, veitir aðgang að upplýsingum sem geymdar eru í endabúnaði hans eða fylgist með athöfnum hans er óheimil nema samkvæmt upplýstu samþykki notanda eða samkvæmt heimild í lögum. Þrátt fyrir þetta er notkun slíks búnaðar heimil til að fá aðgang að upplýsingum og/eða til tæknilegrar geymslu í lögmætum tilgangi með vitund hlutaðeigandi notanda. Í 1. mgr. 7. gr. málsmeðferðarreglna Fjarskiptastofu nr. 710/2020 er kveðið á um að stofnunin taki aðeins kvörtun til skoðunar ef m.a. umkvörtunarefnið fellur innan gildissviðs fjarskiptalaga.
Eftirlit Fjarskiptastofu með vefkökum snýr að því hvort heimild sé fyrir vinnsluaðgerðum, t.a.m. hvort upplýst samþykki liggi fyrir og hvort notendum sé gert viðvart um slíka heimild. Ágreiningur í málinu sneri ekki að því hvort samþykki hafi verið til staðar og ekki hvort að notendum hafi verið gert viðvart um slíkt heldur sneri ágreiningurinn að því hvort RÚV ohf. hafi yfirhöfuð verið heimilt að nota vefkökur sem kvartandi leit á sem aðgangshindrun. Enga takmörkun er að finna í fjarskiptalögum hvort lögaðilum, opinberum eða einkaaðilum, sé heimilt að nota vefkökur á vefsíðu sinni. Af þeim sökum taldi Fjarskiptastofa ágreiningsefnið ekki heyra undir gildissvið Fjarskiptastofu og því ekki á valdsviði stofnunarinnar til að skera úr um ágreininginn.