Óumbeðin fjarskipti Nýju vátryggingaþjónustunnar ehf.
- gr. Óumbeðin fjarskipti.
Þann 10. október sl. tók Fjarskiptastofa ákvörðun nr. 11/2024 í kvörtunarmáli um að Nýja Vátryggingaþjónustan ehf. hefði brotið gegn 5. mgr. 46. gr. þágildandi fjarskiptalaga nr. 81/2003 um óumbeðin fjarskipti. Kvartanda barst símtal frá Nýju Vátryggingaþjónustunni ehf. þann 12. apríl 2022 en kvartandi var merktur með þeim hætti í símaskrá sem gefur til kynna að hann vilji ekki fá símtöl sem eru liður í markaðssetningu aðila. Nýja Vátryggingaþjónustan ehf. hafnaði því að um markaðssetningu hafði verið að ræða og vildi meina að þetta hafi verið hluti af þjónustu við kvartanda, sem er í viðskiptum við Allianz, en Nýja Vátryggingaþjónustan ehf. er með gildan vinnslusamning um tryggingamiðlun fyrir það félag.
Auk þess vildi Nýja Vátryggingaþjónustan ehf. meina að ástæða símtalsins hafi verið að kynna fyrir kvartanda að hann gæti aukið við iðgjald þannig að lífeyrisgreiðslur til hans myndu aukast innan gildandi samnings, þegar lífeyristaka hæfist. Að mati Fjarskiptastofu þarf að túlka ákvæðið rúmt og af ákvæðinu leiðir að ekki má hafa samband við fólk, sem er með samning við fyrirtæki, í markaðslegum tilgangi (á grundvelli kaupa á vörum eða þjónustu), ef það er bannmerkt í símaskrá, nema þá að þess sé þörf til að efna gildandi samning milli aðila. Fjarskiptastofa taldi svo ekki hátta til í þessu máli, þar sem tilgangur símtalsins var að fá kvartanda til að auka viðskipti sín við tryggingafélagið.
Það var því niðurstaða Fjarskiptastofu að Nýja Vátryggingaþjónustan ehf. hafi brotið gegn ákvæði 5. mgr. 46. gr. þágildandi fjarskiptalaga.