Þjónustuþættir og verðlagning í áskriftarleið
- gr. Gildistími, uppsögn og breytingar á samningum
Fjarskiptastofa barst kvörtun frá neytanda gegn Símanum vegna breytingar félagsins á þjónustuþætti í áskriftarleið ásamt verðbreytingu á þjónustunni. Í ákvörðuninni var gerð grein fyrir hvers eðlis neytendavernd er samkvæmt ákvæðum fjarskiptalaga. Ákvæðin gera ekki ráð fyrir að FST geti endurskoðað einstakar ákvarðanir fjarskiptafyrirtækja um vöruframboð, áskriftarleiðir, verð og viðskiptaskilmála, á smásölustigi. Slík inngrip geta eingöngu átt við í vel afmörkuðum undantekningartilvikum, að uppfylltum sérstökum skilyrðum, sem ekki áttu við í þessu máli.
Fjarskiptalög byggja heldur ekki á þeirri forsendu að viðskiptavinir þurfi að samþykkja skilmála- og verðskrárbreytingar fjarskiptafyrirtækja. Lagaumgjörð neytendamála er fremur með þeim hætti að neytendur njóti fræðslu og aðgengilegra upplýsinga um viðskiptakjör sín og geti með auðveldum hætti fært viðskipti sín til annarra þjónustuveitenda, t.d. ef óhagstæðar breytingar á viðskiptakjörum gefa tilefni til slíks.
Niðurstaða málsins var að hafna því að Síminn hefði brotið gegn 72. gr, fjarskiptalaga um tilkynningu til viðskiptavina um breytingar á skilmálum eða gjaldkrá þjónustunnar. Að öðru leyti var kvörtun kvartanda vísað frá.