Hoppa yfir valmynd
Ákvarðanir
Númer
04/2024
Heiti
Kvörtun um ólögmæta hagnýtingu og skemmda á fjarskiptaneti Mílu
Dagsetning
07.05.2024
Málaflokkur
Annað
Lagagreinar
  1. gr. Vernd fjarskiptavirkja
Reifun

Fjarskiptastofu barst kvörtun frá Mílu þann 25. júlí 2023. Kvörtunin fjallar um meint ólögmæt not Ljósleiðarans á innviðum Mílu. Í kvörtun Mílu segir að hluti uppbyggingar Ljósleiðarans á höfuðborgarsvæðinu hafi farið fram með ólögmætum hætti frá 2006 a.m.k.

Míla setti fram kröfur sínar í fjórum liðum.  Fyrsti liðurinn kvað á um að Fjarskiptastofu bæri að úrskurða um það hvort meint ólögmæt not Ljósleiðarans fæli í sér brot á lögum og reglum sem stofnuninni hefði verið falið að annast framkvæmd á. Annar liðurinn kvað á um að Fjarskiptastofa myndi beita þeim viðurlagaúrræðum ættu við. Þriðji liðurinn fjallaði um að Fjarskiptastofa skyldi úrskurða um hæfilegt endurgjald sem Ljósleiðaranum bæri að greiða Mílu fyrir þá nýtingu er félagið hafði haft af innviðum Mílu og til framtíðar kysi Ljósleiðarinn að nýta innviðina áfram. Fjórði liðurinn fjallaði um að Fjarskiptastofa skyldi gefa Ljósleiðaranum fyrirmæli um að fjarlægja ljósleiðarastrengina ef félagið kjósi ekki að nýta áfram umrædda innviði og að Ljósleiðaranum yrði gert að bæta Mílu það tjón sem fyrirtækið hefur valdið á innviðum Mílu.

Ákvörðun þessi er afmörkuð við 86. gr. fjarskiptalaga nr. 70/2022 enda getur FST ekki skorið úr um ólögmæt afnot fjarskiptafyrirtækis af fjarskiptainnviðum annars fjarskipta fyrirtækis þar sem slík lagastoð er ekki fyrir hendi. Þá getur Fjarskiptastofa ekki gefið fyrirmæli um að fjarskiptafyrirtæki fjarlægi ljósleiðaraþræði úr rörum enda stendur ekki skýr lagaheimild til þess. Loks féll Míla frá kröfu um ákvörðun bóta og skiptingu kostnaðar og var því ekki fjallað um þann lið kvörtunarinnar.

Flest þau tilvik sem kvörtunin tók til áttu sér stað á milli áranna 2006 og 2009 þ.e. aftur fyrir gildistöku núgildandi laga. Aftur á móti er ákvæðið sem varðar skemmd fjarskiptavirkja (86. gr. núgildandi fjarskiptalaga) efnislega óbreytt 71. gr. eldri fjarskiptalögum nr. 81/2003 og var því skorið úr um ágreiningsefnið á grundvelli núgildandi laga. Hér verður þó að hafa í huga að lög sem íþyngja þegnum þjóðfélagsins á almennt að skýra þannig að þeim verði ekki beitt afturvirkt, því kom ekki til álita að beita sektarheimildum sem kveðið er á um í XV. kafla fjarskiptalaga og leiddar voru í lög þann 1. september 2022.

Þótt því hafi verið slegið föstu að skerðing á rými í röri, með því að draga í það ljósleiðaraþráð án heimildar, teldist ekki til skemmda á fjarskiptavirki í skilningi 86. gr. fjarskiptalaga taldi Fjarskiptastofa ekki rétt að útiloka að eiginlegar skemmdir hefðu átt sér stað og gætu komið til úrlausnar í stjórnsýslumáli. Fjarskiptastofa leiðbeindi Mílu að þá þyrfti að koma fram lýsing á meintum skemmdum í viðkomandi staðföngum, helst með afhendingu mynda, auk þess að tilgreint væri hvenær atvikin hefðu átt sér stað og hvenær þau voru uppgötvuð af hálfu Mílu. Þrátt fyrir ítrekaðar leiðbeiningar um að framangreindar upplýsingar væru nauðsynlegar fyrir úrlausn málsins þá komu þær aldrei fram. Var því óhjákvæmilegt annað en að vísa þessum þætti málsins frá vegna vanreifunar Mílu á efni kvörtunarinnar.             

Tengt efni
Ekkert tengt efni skráð