Hoppa yfir valmynd

Framkvæmdir í gangi 2025 - 2026

Lagning ljósleiðara á Borgarfirði eystra

Míla í samstarfi við Múlaþing leggur ljósleiðara á Borgarfirði eystra sumarið 2026. Framkvæmdaáformin eru auglýst á heimasíðu Mílu.

Framkvæmdin er styrkt með átaki stjórnvalda um að klára ljósleiðaravæðingu landsins fyrir árslok 2026. Múlaþing var eitt þeirra sveitarfélaga sem fékk styrk til framkvæmda.

Áformað er að framkvæmdir fari fram sumarið 2026. Nánari upplýsingar um tímasetningar veitir Míla.

Óski fyrirtæki eftir samstarfi í framkvæmdinni skal beina slíkri fyrirspurn til Mílu með tölvupósti á netfangið mila@mila.is samkvæmt þeim fresti sem tilgreindur er á heimasíðu Mílu til að tryggja að hönnun verkefnis geri ráð fyrir samnýtingu lagnaleiða innan framkvæmdatímans.

Sjá nánar á vef Múlaþings.

Lagning ljósleiðara á Hólum í Hjaltadal í maí 2026

Míla í samstarfi við Skagafjörð leggur ljósleiðara á Hólum í Hjaltadal í maí 2026. Framkvæmdaáformin eru auglýst á heimasíðu Mílu. Framkvæmdin er styrkt með átaki stjórnvalda um að klára ljósleiðaravæðingu landsins fyrir árslok 2026. Skagafjörður var eitt þeirra sveitarfélaga sem fékk styrk til framkvæmda.

Áformað er að framkvæmdir fari fram í maí 2026. Nánari upplýsingar um tímasetningar veitir Míla.

Óski fyrirtæki eftir samstarfi í framkvæmdinni skal beina slíkri fyrirspurn til Mílu með tölvupósti á netfangið mila@mila.is samkvæmt þeim fresti sem tilgreindur er á heimasíðu Mílu til að tryggja að hönnun verkefnis geri ráð fyrir samnýtingu lagnaleiða innan framkvæmdartímans.

Sjá nánar á vef Sveitarfélagsins Skagafjörður.

Lagning ljós­leiðara á Tálkna­firði

Míla í samstarfi við sveit­ar­fé­lagið hyggst leggja ljós­leiðara í þétt­býli á árinu 2026. Um er að ræða fram­kvæmdir á Tálkna­firði.

Framkvæmdin er styrkt með átaki stjórnvalda um að klára ljósleiðaravæðingu landsins fyrir árslok 2026. Áformað er að framkvæmdir hefjist í Tálknafirði næsta vor en nánari upplýsingar veitir Míla. Framkvæmdaráformin eru auglýst á heimasíðu Mílu, sjá hlekk neðst í fréttinni.

Notendur þurfa ekki að greiða tengigjald eða aðra hlutdeild í kostnaði við lögn að inntakskassa samþykki þeir að lögð sé til þeirra tenging. Kjósi notendur að taka tengingu síðar má búast við umtalsverðum viðbótarkostnaði til þeirra þar sem framlag Fjarskiptasjóðs og/eða sveitarfélagsins verður þá ekki í boði og samlegðaráhrif falla út.

Óski fyrirtæki eftir samstarfi í framkvæmdum á einstaka svæðum skal beina slíkri fyrirspurn til Mílu með tölvupósti á netfangið mila@mila.is við fyrsta tækifæri og að minnsta kosti innan 30 daga frá birtingu tilkynningar þessar svo hægt sé að tryggja að hönnun verkefnis geri ráð fyrir samnýtingu lagnaleiða innan framkvæmdartímans.

Sjá auglýsingu á vef Vesturbyggðar.

Framkvæmdir á Hvammstanga

Framkvæmdir á Hvammstanga. Framkvæmdaaðili er Míla.

Bæði er um að ræða skurðvinnu og ídrátt í fyrirliggjandi rör.

Framkvæmdatími er sumar 2026.

Framkvæmdin var auglýst á vef Mílu 2. desember 2025. Sömuleiðis hefur framkvæmdin verið auglýst á heimasíðu Húnaþings vestra. Gefinn var 60 daga frestur frá birtingu auglýsingu Mílu til að óska eftir samnýtingu.

Tengiliður hjá Húnaþingi vestra er Ingimar Ingimarsson sviðsstjóri umhverfis-, veitu- og framkvæmdasviðs. Beiðnum um samnýtingu skal beina til Mílu, mila@mila.is

Fyrirhugaðar framkvæmdir við lagningu ljósleiðara í þéttbýli Fjarðabyggðar

Fyrirhugaðar eru framkvæmdir við lagningu ljósleiðara í þéttbýli Fjarðabyggðar og er Míla hf. í samstarfi við Fjarðabyggð að fara í framkvæmdir á árinu 2026.  Um er að ræða framkvæmdir í Reyðarfirði og Eskifirði.   Um er að ræða síðar áfanga framkvæmda sem voru lagning ljósleiðar í þéttbýli Breiðdals, Stöðvarfjarðar, Fáskrúðsfjarðar og Norðfjarðar.

Stefnt er að því að tengja öll heimili og fyrirtæki sem þess óska á þessum stöðum á árinu 2026.

Framkvæmdaáformin eru auglýst á heimasíðu Mílu á slóðinni https://www.mila.is/framkvaemdir/tilkynningar-um-framkvaemdir

https://www.mila.is/framkvaemdaaaetlanir/reydarfjordur-1

https://www.mila.is/framkvaemdaaaetlanir/eskifjodur-2026

Framkvæmdin er styrkt með átaki  stjórnvalda um að klára ljósleiðaravæðingu landsins fyrir árslok 2026. Fjarðabyggð var eitt þeirra  sveitarfélaga sem fékk styrk til framkvæmda.   Ekki liggur fyrir nákvæm tímasetning um upphaf framkvæmda en áformað er að framkvæmdir hefjist í byrjun sumars á Reyðarfirði og í framhaldinu á Eskifirði.

Jarðstrengur Vopnafjörður - Þórshöfn.

Rarik undirbýr lagningu jarðstrengs 33KV. frá Vopnafirði til Þórshafnar alls 67 km.

Strengurinn verður tengdur í aðveitustöðvar á báðum stöðum.

Lagnaleiðin er að mestu meðfram þjóðvegi frá Vopnafirði, Sandvíkurheiði, eftir Bakkafirði og Brekknaheiði.

Verktakavinna, jarðvinna og strenglagning verður boðin út í feb. 2026. og áætlaður verktími er júní til október 2026.

Nánari upplýsingar veitir Árni Grétar Árnason arnarn@rarik.is og Guðrún Brynleifsdóttir gudbry@rarik.is

Jarðstrengur Hveragerði - Þorlákshöfn

Landsnet undirbýr lagningu 132 kV jarðstrengs 21 km leið milli Hveragerðis og Þorlákshafnar.

Jarðstrengurinn kemur til með að tengjast annars vegar upp í loftlínu Sogslínu 2, skammt frá tengivirkinu í Hveragerði og hins vegar inn í viðbyggingu við tengivirkið við Þorlákshöfn.

Strengleiðin mun í stórum dráttum fylgja Suðurlandsvegi (framtíðarlegu) og Þorlákshafnarvegi.

Áætlað er að jarðvinna og strenglagning verði boðin út í janúar 2026 og unnið verði að lagningu strengsins á tímabilinu júní - október 2026 og aftur í apríl - október 2027.

Nánari upplýsingar veitir verkefnastjóri verkefnisins, Friðrika Móa Marteinsdóttir, Landsneti (fridrikam@landsnet.is ).

Lagning ljós­leiðara á Bíldudal

Snerpa í samstarfi við Vest­ur­byggð hyggst leggja ljós­leiðara í þétt­býli á Bíldudal á árinu 2025. Fram­kvæmdin er styrkt með átaki stjórn­valda um að klára ljós­leið­ara­væð­ingu landsins fyrir árslok 2026. Áformað er að fram­kvæmdir hefjist á Bíldudal næsta vor en nánari upplýs­ingar veitir Snerpa.

Birt á vef Vesturbyggðar 4. apríl 2025

Notendur þurfa ekki að greiða tengigjald eða aðra hlutdeild í kostnaði við lögn að inntakskassa samþykki þeir að lögð sé til þeirra tenging. Kjósi notendur að taka tengingu síðar má búast við umtalsverðum viðbótarkostnaði til þeirra þar sem framlag Fjarskiptasjóðs og/eða sveitarfélagsins verður þá ekki í boði og samlegðaráhrif falla út.

Þeir sem ætla að óska eftir ljósleiðaratengingu í hús sitt þurfa að senda eftirfarandi upplýsingar á netfangið vesturbyggd@vesturbyggd.is  fyrir mánudaginn 14. apríl og merkja póstinn „Ljósleiðari á Bíldudal 2503092“:

  • Heimilisfang viðkomandi
  • Nafn eiganda eða tengiliðs eiganda
  • Símanúmer
  • Tölvupóstfang
  • Nafn fulltrúa húsfélags, ef húsfélag er til staðar

Lagning ljósleiðara í þéttbýli Fjarðabyggðar

Míla í samstarfi við Fjarðabyggð leggur ljósleiðara í þéttbýlum Fjarðabyggðar á árinu 2025.  Um er að ræða framkvæmdir í Neskaupstað, á Breiðdalsvík, Stöðvarfirði og Fáskrúðsfirði.  Framkvæmdaáformin eru auglýst á heimasíðu Mílu á slóðinni https://www.mila.is/framkvaemdaaaetlanir.

Framkvæmdin er styrkt með átaki  stjórnvalda um að klára ljósleiðaravæðingu landsins fyrir árslok 2026. Fjarðabyggð var eitt þeirra  sveitarfélaga sem fékk styrk til framkvæmda.

Áformað er að framkvæmdir hefjist í tilgreindum bæjarkjörnum vorið 2025 en nánari upplýsingar um tímasetningar veitir Míla.

Óski fyrirtæki eftir samstarfi í framkvæmdum á einstaka svæðum skal beina slíkri fyrirspurn til Mílu með tölvupósti á netfangið mila@mila.is við fyrsta tækifæri  og a.m.k. innan 30 daga frá birtingu tilkynningar þessar svo hægt sé að tryggja að hönnun verkefnis geri ráð fyrir samnýtingu lagnaleiða innan framkvæmdartímans.

Sjá einnig frétt á vef Fjarðabyggðar.

Lagning ljósleiðara í þéttbýli Snæfellsbæjar

Míla í samstarfi við Snæfellsbæ leggur ljósleiðara í þéttbýliskjörnunum í Snæfellsbæ á árinu 2025. Um er að ræða framkvæmdir í Ólafsvík og á Hellissandi. Framkvæmdaáformin eru auglýst á heimasíðu Mílu.

Framkvæmdin er styrkt með átaki stjórnvalda um að klára ljósleiðaravæðingu landsins fyrir árslok 2026. Snæfellsbær var eitt þeirra sveitarfélaga sem fékk styrk til framkvæmda.

Áformað er að framkvæmdir hefjist í Ólafsvík og Hellissandi næsta vor en nánari upplýsingar um tímasetningar veitir Míla.

Óski fyrirtæki eftir samstarfi í framkvæmdum á einstaka svæðum skal beina slíkri fyrirspurn til Mílu með tölvupósti á netfangið mila@mila.is við fyrsta tækifæri og a.m.k. innan 30 daga frá birtingu tilkynningar þessarar svo hægt sé að tryggja að hönnun verkefnis geri ráð fyrir samnýtingu lagnaleiða innan framkvæmdatímans.

Framkvæmdir á Laugarbakka í Húnaþingi vestra.

Framkvæmdir á Laugarbakka í Húnaþingi vestra. Framkvæmdaaðili er Míla.
Bæði er um að ræða skurðvinnu og ídrátt í fyrirliggjandi rör.
Framkvæmdatími er sumar 2025, júní til september.
Framkvæmdin var auglýst á vef Mílu þann 31. janúar 2025.

Sömuleiðis var framkvæmdin auglýst á heimasíðu Húnaþings vestra 18. febrúar 2025.

Gefinn er 30 daga frestur til að óska eftir samnýtingu eða til og með 20. mars 2025.

Tengiliður hjá Húnaþingi vestra er Þorgils Magnússon sviðsstjóri umhverfis-, veitu- og framkvæmdasviðs. Beiðnum um samnýtingu skal beina til Mílu, mila@mila.is

Lagning ljósleiðara í þéttbýli Suðurnesjabæjar

Míla í samstarfi við Suðurnesjabæ leggur ljósleiðara í þéttbýlum Suðurnesjabæjar á árinu 2025. Um er að ræða framkvæmdir í Sandgerði og Garði. Framkvæmdaáformin eru auglýst á heimasíðu Mílu á slóðinni: https://www.mila.is/framkvaemdaaaetlanir.

Framkvæmdin er styrkt með átaki stjórnvalda um að klára ljósleiðaravæðingu landsins fyrir árslok 2026. Suðurnesjabær var eitt þeirra sveitarfélaga sem fékk styrk til framkvæmda.

Áformað er að framkvæmdir hefjist í bæjarkjörnunum næsta vor en nánari upplýsingar um tímasetningar veitir Míla.

Óski fyrirtæki eftir samstarfi í framkvæmdum á einstaka svæðum skal beina slíkri fyrirspurn til Mílu með tölvupósti á netfangið mila@mila.is við fyrsta tækifæri og a.m.k. innan 30 daga frá birtingu tilkynningar þessar svo hægt sé að tryggja að hönnun verkefnis geri ráð fyrir samnýtingu lagnaleiða innan framkvæmdartímans.

Lagning ljósleiðara á Sauðárkróki

Míla í samstarfi við Skagafjörð leggur ljósleiðara á Sauðárkróki sumarið 2025. Framkvæmdaáformin eru auglýst á heimasíðu Mílu. Framkvæmdin er styrkt með átaki stjórnvalda um að klára ljósleiðaravæðingu landsins fyrir árslok 2026. Skagafjörður var eitt þeirra sveitarfélaga sem fékk styrk til framkvæmda.

Áformað er að framkvæmdir fari fram sumarið 2025 á tímabilinu júní til október. Nánari upplýsingar um tímasetningar veitir Míla.

Óski fyrirtæki eftir samstarfi í framkvæmdinni skal beina slíkri fyrirspurn til Mílu með tölvupósti á netfangið mila@mila.is við fyrsta tækifæri og a.m.k. innan 30 daga frá birtingu tilkynningar þessar svo hægt sé að tryggja að hönnun verkefnis geri ráð fyrir samnýtingu lagnaleiða innan framkvæmdartímans.

Sjá tilkynningu á vef sveitarfélagsins.

Lagning ljósleiðara í Laugarás

Míla í samstarfi við Bláskógabyggð leggur ljósleiðara innan þéttbýlisins í Laugarási á árinu 2025. Framkvæmdaáformin eru auglýst á heimasíðu Mílu á slóðinni: Laugarás - Míla

Framkvæmdin er styrkt af Fjarskiptasjóði í tengslum við átak um að klára ljósleiðaravæðingu landsins fyrir árslok 2026. Bláskógabyggð var eitt þeirra sveitarfélaga sem fékk slíkan styrk.

Áformað er að framkvæmdir hefjist í Laugarási næsta vor en nánari upplýsingar um tímasetningar veitir Míla.

Óski fyrirtæki eftir samstarfi í framkvæmdum á einstaka svæðum skal beina slíkri fyrirspurn til Mílu með tölvupósti á netfangið mila@mila.is við fyrsta tækifæri og a.m.k. innan 30 daga frá birtingu tilkynningar þessar svo hægt sé að tryggja að hönnun verkefnis geri ráð fyrir samnýtingu lagnaleiða innan framkvæmdatímans.

Lagning ljós­leiðara í þétt­býli Vesturbyggðar

Míla í samstarfi við Vest­ur­byggð hyggst leggja ljós­leiðara í þétt­býli Vest­ur­byggðar á árinu 2025. Um er að ræða fram­kvæmdir á Patreks­firði.

Framkvæmdin er styrkt með átaki  stjórnvalda um að klára ljósleiðaravæðingu landsins fyrir árslok 2026. Vesturbyggð var eitt þeirra sveitarfélaga sem fékk styrk til framkvæmda.

Áformað er að framkvæmdir hefjist í tilgreindum bæjarkjarna næsta vor en nánari upplýsingar um tímasetningar veitir Míla.

Óski fyrirtæki eftir samstarfi í framkvæmdum á einstaka svæðum skal beina slíkri fyrirspurn til Mílu með tölvupósti á netfangið mila@mila.is við fyrsta tækifæri og a.m.k. innan 30 daga frá birtingu tilkynningar þessar svo hægt sé að tryggja að hönnun verkefnis geri ráð fyrir samnýtingu lagnaleiða innan framkvæmdartímans.

Framkvæmdaáformin eru auglýst á heimasíðu Mílu og á vef Vesturbyggðar.

Lagning ljósleiðara á Hvammstanga

Míla í samstarfi við Húnaþing vestra leggur ljósleiðara á Hvammstanga sumarið 2025. Framkvæmdaáformin eru auglýst á heimasíðu Mílu. Framkvæmdin er styrkt með átaki stjórnvalda um að klára ljósleiðaravæðingu landsins fyrir árslok 2026. Húnaþing vestra var eitt þeirra sveitarfélaga sem fékk styrk til framkvæmda.

Áformað er að framkvæmdir fari fram sumarið 2025 á tímabilinu júní til september. Nánari upplýsingar um tímasetningar veitir Míla.

Óski fyrirtæki eftir samstarfi í framkvæmdinni skal beina slíkri fyrirspurn til Mílu með tölvupósti á netfangið mila@mila.is við fyrsta tækifæri og a.m.k. innan 30 daga frá birtingu tilkynningar þessar svo hægt sé að tryggja að hönnun verkefnis geri ráð fyrir samnýtingu lagnaleiða innan framkvæmdartímans.

Sjá einnig á ef Húnaþings vestra

Ljósleiðari SVH

Sveitarfélagið Hornafjörður hefur samið við Mílu um framkvæmdir innanbæjar á Höfn

Framkvæmdaáformin eru auglýst á heimasíðu Mílu: https://www.mila.is/framkvaemdaaaetlanir/hornarfjordur

Framkvæmdin er styrkt með átaki stjórnvalda um að klára ljósleiðaravæðingu landsins fyrir árslok 2026.Sveitarfélagið Hornafjörður var eitt þeirra sveitarfélaga  sem fékk styrk til framkvæmda

Um er að ræða blöndu af plægingu og skurðgreftri

Áætlað er að hefja framkvæmdir um miðjan mai 2025.

Óski fyrirtæki eftir samstarfi í framkvæmdum á einstaka svæðum skal beina slíkri fyrirspurn til Mílu með tölvupósti á netfangið mila@mila.is við fyrsta tækifæri og a.m.k. innan 30 daga frá birtingu tilkynningar þessar svo hægt sé að tryggja að hönnun verkefnis geri ráð fyrir samnýtingu lagnaleiða innan framkvæmdartímans.

https://www.mila.is/framkvaemdaaaetlanir