Hoppa yfir valmynd

Útbreiðsla á stofnvegum - flokkun vega

Í gildandi tíðniheimildum er kveðið á um sértækar útbreiðslu- og hraðakröfur á stofnvegakerfi landsins, þar sem stofnvegir eru flokkaðir í A, B, C og D flokka. Myndræn framsetning þessara flokka í tíðniheimildunum hefur í reynd verið meginviðmið rétthafa og Fjarskiptastofu við framkvæmd og eftirfylgni þessara skilyrða.

Fjarskiptastofa telur tímabært að uppfæra þessa mynd til að endurspegla breytingar sem orðið hafa á stofnvegakerfinu frá útgáfu heimildanna og um leið skýra með ótvíræðum hætti hvaða vegir falla undir hvern flokk. Í upphaflegri framsetningu innihéldu flokkar B og C einungis stofnvegi utan þéttbýlis, með þeim afleiðingum að stofnvegir innan þéttbýlis féllu allir í flokk D. En stofnunin hefur nú ákveðið að flokkarnir skulu vera algjörlega óháðir því hvort vegur sé í þéttbýli eða dreifbýli.

Sértækar útbreiðslu- og hraðakröfur, sem kveðið er á um í 10. gr. Tíðniheimilda til notkunar á farnetsþjónustu, skulu hér eftir miða við eftirfarandi flokkun stofnvega:

A.Hringvegurinn (vegur nr. 1).
B.Stofnvegir sem eru hluti af fjölförnustu leið frá hringveginum að þéttbýlisstöðum með fleiri en 500 íbúa.
C.Fjölfarnir vegir sem falla ekki undir A og B. Vegir þar sem 1000 bílar eða fleiri fóru um að meðaltali á dag.
D.Allir stofnvegir sem ekki falla undir A, B og C, að undanskildum stofnvegum um hálendi.
E.Stofnvegir sem liggja um hálendi (F merktir stofnvegir).

Markmið þessarar uppfærslu er að tryggja skýrari ramma fyrir framkvæmd og eftirlit, án þess að raska þeim grundvelli sem skilyrði heimildanna hafa byggt á. Breytingarnar ættu ekki hafa í för með sér veruleg áhrif fyrir rétthafa.

Kortið sýnir sýnir skiptingu stofnvega og hægt að þysja inn til að sjá nánar