Yfirlit gagnabeiðna fyrir árið 2025
Yfirlit gagnabeiðna fyrir árið 2025
Fjarskiptastofa sinnir fjölbreyttum verkefnum við framþróun fjarskiptamarkaðar. Hafa þessi verkefni m.a. það markmið að efla samkeppni neytendum til hagsbóta, auka aðgengi almennings að háhraða gagnaflutningsþjónustu og stuðla að öryggi fjarskiptaneta og auknum gæðum þjónustunnar. Mörg af þessum verkefnum kalla á umfangsmikla gagnaöflun um fjarskiptainnviði, markaðs- og samkeppnisaðstæður, rekstrarafkomu fjarskiptafyrirtækja, auk upplýsinga um stjórnunarkerfi net- og upplýsingaöryggis og öryggisráðstafanir fjarskiptafyrirtækja.
Tekið skal fram að gagnasöfnun Fjarskiptastofu tekur einnig til annarra eftirlitsskyldra aðila sem ekki starfa á fjarskiptamarkaði, s.s. rekstraraðila stafrænna grunnvirkja og veitendur stafrænnar þjónustu, sbr. netöryggislöggjöfina, eða á sviði traustþjónustu og/eða rafrænnar auðkenningar.
Í þágu aukins gagnsæis og fyrirsjáanleika fyrir eftirlitsskylda aðila hefur verið tekið upp það verklag að birta yfirlit yfir væntanlegar gagnabeiðnir Fjarskiptastofu fyrir hvert ár. Fjarskiptastofa birtir núna yfirlit yfir þær gagnabeiðnir sem eru fyrirséðar í ár. Þetta þarf ekki að vera tæmandi upptalning gagnabeiðna og birting yfirlitsins útilokar ekki að frekari gagnabeiðnir verði lagðar fram á árinu, ef þörf þykir á.
Stefnt er að því að upplýsingasöfnun eigi sér stað í gegnum rafræna upplýsingagátt, en hönnun og útfærsla hennar liggur ekki fyrir enn sem komið er. Leiðbeint verður um það sérstaklega þegar þar að kemur. Leiðbeiningar um afhendingu og skil gagna núna mun berast aðilum frá þeim sérfræðingum stofnunarinnar sem annast gagnasöfnunina í hverju tilviki fyrir sig.