Hoppa yfir valmynd

Úrskurðarnefnd fjarskipta- og póstmála staðfestir ákvörðun Fjarskiptastofu um að tiltekin tegund af bylgjulengdarsamböndum Mílu falli undir kvaðir

Fréttasafn
07. júlí 2026

Úrskurðarnefnd fjarskipta- og póstmála staðfestir ákvörðun Fjarskiptastofu um að tiltekin tegund af bylgjulengdarsamböndum Mílu falli undir kvaðir

Með úrskurði úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála (nefndin) í máli nr. 2/2026, dags. 30. júní sl., hafnaði nefndin kröfu Mílu um að liðir 3 og 4 í ákvörðunarorðum ákvörðunar Fjarskiptastofu (FST) nr. 12/2025 yrðu felldir úr gildi. Míla krafðist jafnframt þess að réttaráhrifum umræddra liða yrði frestað á meðan málið væri til meðferðar hjá nefndinni, en þeirri kröfu hafnaði úrskurðarnefndin með úrskurði 18. febrúar 2026.

Með hinni kærðu ákvörðun komst FST að þeirri niðurstöðu að Míla hefði brotið gegn gagnsæiskvöð samkvæmt ákvörðun Póst- og fjarskiptastofnunar (PFS) nr. 21/2015 í tengslum við bylgjuflutningsþjónustu félagsins, nánar tiltekið varðandi framboð á „Alien Wavelength“ (AWL) bylgjuflutningsþjónustu. Mílu var gert að uppfæra viðmiðunartilboð félagsins fyrir leigulínur og framkvæma kostnaðargreiningu vegna AWL bylgjuflutningsþjónustunnar, sem skyldi skila til FST eigi síðar en 1. mars 2026.

Í ákvörðun FST nr. 12/2025 komst stofnunin að þeirri niðurstöðu að AWL þjónusta Mílu félli undir kvaðir samkvæmt ákvörðun PFS  nr. 21/2015, þar á meðal kvöð um gagnsæi. Þannig taldi FST að bylgjulengdardeiling í ljósleiðurum, þ.m.t. DWDM-tækni, félli undir þann markað og að þjónusta sem byggði á sömu flutningsaðferð, líkt og AWL bylgjuflutningsþjónusta Mílu, félli þar með undir sömu markaðsskilgreiningu og sömu kvaðir og hefðbundin bylgjuflutningsþjónusta.

Nefndin féllst á þessi sjónarmið FST og tók fram að kvöðum á fjarskiptamarkaði væri almennt ætlað að standast tæknilega þróun og að orðalag þeirra væri því oft almennt orðað víðtækt og tæknilega hlutlaust. Skilgreining markaðarins í ákvörðun PFS 21/2015 hefði verið víðtæk og nægilega sveigjanleg til að standa óbreytt þrátt fyrir breytingar á tækni og flutningsmiðlum. Taldi nefndin því ekki forsendur til að líta svo á að þjónusta sem uppfyllti efnisleg skilyrði leigulínu væri undanskilin kvöðinni vegna rekstrarfyrirkomulags eða þess hver stýrði flutningi þjónustunnar.

Míla hefur þegar skilað til Fjarskiptastofu uppfærðu viðmiðunartilboð fyrir umrædda bylgjulengdarþjónustu. Fjarskiptastofa ráðgerir að efna til samráðs við hagaðila um efni tilboðsins í upphafi hausts.

Úrskurðir nefndarinnar:
Úrskurður um frestun réttaráhrifa 
Úrskurður um hluta ákvörðunar FST nr. 12/2025 um Alien Wavelength þjónustu Mílu