Úrlausn á kvörtun um brot Mílu á kvöðum
Úrlausn á kvörtun um brot Mílu á kvöðum
Ljósleiðarinn ehf. (Ljósleiðarinn) sendi Fjarskiptastofu (FST) erindi vegna meintra brota Mílu hf. (Míla) á kvöðum sem koma fram í ákvörðunum Póst- og fjarskiptastofnunar (PFS) nr. 8/2014, 21/2015 og 5/2024.
FST fjallaði fyrst um ágreining málsaðila vegna IP-MPLS þjónustu Mílu. Ágreiningur málsaðila snerist um hvort IP-MPLS þjónusta Mílu félli undir heildsölumarkað fyrir lúkningarhluta og stofnlínuhluta leigulína og þar með þær kvaðir sem Míla er undir á þeim mörkuðum. Ljósleiðarinn taldi að þjónustan félli undir þessa markaði og hélt því fram að Míla hefði ekki orðið við eðlilegum og sanngjörnum beiðnum um aðgang að IP-MPLS þjónustu, mismunað fjarskiptafyrirtækjum og ekki birt viðmiðunartilboð fyrir þjónustuna. Míla hafnaði því og taldi að IP-MPLS þjónustan félli utan skilgreindra markaða og væri því ekki háð umræddum kvöðum.
FST rifjar upp í ákvörðun sinni að stofnunin hafi í desember 2021 áréttað við Mílu að IP-MPLS kerfi félagsins félli undir gildandi kvaðir. Míla kærði áréttinguna til úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála sem taldi áréttinguna vera stjórnvaldsákvörðun og frestaði réttaráhrifum hennar. Í kjölfarið var áréttingin afturkölluð í febrúar 2022 og hefur FST síðan þá ekki tekið nýja stjórnvaldsákvörðun um kvaðir á IP-MPLS þjónustu Mílu. Með vísan til þessa taldi FST að Míla væri ekki undir kvöðum að því er varðar IP-MPLS þjónustu og að félagið hefði ekki brotið gegn aðgangs-, jafnræðis- eða gagnsæiskvöðum í því samhengi.
FST tók einnig afstöðu til ágreinings um bylgjuflutningsþjónustu Mílu, svonefnda „Alien Wavelength“ þjónustu sem félagið veitir Farice. Deilt var um hvort þjónustan félli undir heildsölumarkað fyrir stofnlínuhluta leigulína og hvort Míla hefði brotið gegn aðgangs-, jafnræðis- og gagnsæiskvöðum samkvæmt ákvörðun PFS nr. 21/2015. FST taldi að þar sem bylgjulengdardeiling í ljósleiðurum, þ.m.t. DMDW-tækni, falli undir heildsölumarkað fyrir stofnlínuhluta leigulína, þá falli þjónusta sem byggir á sömu tækni, líkt og Alien bylgjuflutningsþjónustan, einnig undir sama markað og þar með viðkomandi kvaðir.
Stofnunin komst að þeirri niðurstöðu að Míla hefði brotið gegn gagnsæiskvöð samkvæmt ákvörðun nr. 21/2015 með því að hafa ekki lagt fram uppfært viðmiðunartilboð fyrir FST til yfirferðar og samþykktar með tilliti til bylgjuflutningsþjónustunnar. Mílu er því gert að skila FST uppfærðu viðmiðunartilboði og kostnaðargreindum verðum fyrir þjónustuna eigi síðar en 1. mars nk. FST taldi hins vegar ótímabært að fullyrða á þessu stigi að Míla hefði brotið gegn aðgangs- og jafnræðiskvöðum. Taldi stofnunin það óvarlegt að líta svo á að félagið hefði brotið aðgangskvöð eins og háttaði sérstaklega til í málinu, m.a. vegna þess að uppfært viðmiðunartilboð Mílu liggur ekki fyrir og ekki er hægt að meta hvort aðgangsbeiðni sé eðlileg og sanngjörn fyrr en formleg aðgangsbeiðni berst frá Ljósleiðaranum. FST taldi sambærileg sjónarmið gilda varðandi meint brot Mílu á jafnræðiskvöðinni.
FST fjallaði jafnframt um atriði í kvörtun Ljósleiðarans sem lúta að þeim hluta jafnræðiskvaðarinnar sem varðar gæðaviðmiðunarsamninga (SLAs), gæðatryggingar (SLGs) og birtingu lykilframmistöðuþátta (KPIs). Í því samhengi tók stofnunin undir með Ljósleiðaranum að ákvæði viðmiðunartilboðs Mílu um gæðaviðmið og gæðatryggingar þurfi að uppfæra, m.a. til samræmis við auknar kröfur og þróun síðustu ára varðandi öryggi og áfallaþol.
Ágreiningslaust var í málinu að Míla hafi hætt að birta lykilframmistöðuþætti fyrir leigulínur, þrátt fyrir skyldu þar að lútandi. Míla vísaði til uppfærslu á heimasíðu félagsins en FST taldi það ekki tæka skýringu. Míla braut því gegn þeim þætti jafnræðiskvaðarinnar sem varðar mælingu og birtingu lykilframmistöðuþátta fyrir leigulínur.
Loks fjallaði kvörtun Ljósleiðarans um takmarkaðan aðgang félagsins að þjónustuvef og vefþjónustuskilum Mílu. FST taldi nauðsynlegt að taka á þeim ágreiningi í sérstakri ákvörðun. Ástæðan er sú að Míla vísaði m.a. til þess að aðgangur að tilteknum upplýsingum gæti farið gegn 10. gr. samkeppnislaga. FST hefur ekki vald til að skera úr um hvort slíkt falli undir samkeppnislög, enda heyrir það undir Samkeppniseftirlitið (SKE), sem hefur samsvarandi ágreiningsmál til meðferðar. FST hyggst fjalla um atriðið að lokinni málsmeðferð SKE.