Uppfærslur á farsímum eru mikilvægar fyrir virkni, öryggi og neyðarsímtöl
Uppfærslur á farsímum eru mikilvægar fyrir virkni, öryggi og neyðarsímtöl
Fjarskiptastofa hvetur alla eigendur snjallsíma til að tryggja að tæki þeirra séu með nýjustu hugbúnaðar- og kerfisuppfærslur, svo þau tengist rétt við fjarskiptanet og styðji örugg neyðarsímtöl.
Reglulegar uppfærslur frá framleiðendum innihalda mikilvægar öryggisuppfærslur og netstillingar. Þessar stillingar hjálpa símanum að virka rétt á íslenskum fjarskiptanetum og stuðla að því að talsamband og neyðarsímtöl virki með réttum hætti.
Farsímar sem fá ekki lengur kerfis- og öryggisuppfærslur, til dæmis eldri tæki eða sumir símar keyptir utan EES-svæðisins, geta verið óöruggir og haft áhrif á aðgang að neyðarnúmerinu 112. Hvatt er til að eigendur slíkra síma hugi að viðeigandi ráðstöfunum.
Fjarskiptastofa beinir eftirfarandi tilmælum til notenda:
- Kannaðu kerfisuppfærslur: Farðu í stillingar símans og athugaðu hvort ný uppfærsla á stýrikerfi eða netstillingum sé í boði.
- Hafðu sjálfvirkar uppfærslur virkar: Stilltu símann þannig að hann sæki og setji upp öryggisuppfærslur sjálfkrafa.
- Tryggðu stuðning við 4G-símtöl (VoLTE): Gakktu úr skugga um að síminn styðji 4G-símtöl (VoLTE / 4G Calling) þar sem sérstök stilling fyrir hana er í boði og að hún sé rétt stillt.
Með því að halda hugbúnaði símans uppfærðum stuðlar þú að auknu öryggi, réttri virkni talsambands og greiðum aðgangi að neyðarþjónustu þegar á reynir.
Fyrir nánari upplýsingar ættu notendur að hafa samband við fjarskiptafyrirtækin eða skoða leiðbeiningar á vef þeirra.