Sýn ber að heimila Símanum að flytja opnu sjónvarpsrásina Sýn án endurgjalds
Sýn ber að heimila Símanum að flytja opnu sjónvarpsrásina Sýn án endurgjalds
Með ákvörðun Fjarskiptastofu (FST) þann 27. nóvember sl. komst stofnunin að þeirri niðurstöðu að beiðni Símans um að fá að flytja hina opnu sjónvarpsrás Sýn á sjónvarpskerfi Símans teldist eðlileg og sanngjörn í skilningi 1. mgr. 45. gr. fjölmiðlalaga. Þá var það niðurstaða FST að Síminn þurfi ekki að greiða sérstaklega fyrir flutning umræddrar frístöðvar þar sem ekki væri heimild til þess í 47. gr. fjölmiðlalaga. Á umræddri stöð má m.a. finna fréttir Sýnar og fréttatengt efni, ásamt ýmsu afþreyingarefni.
Með ákvörðun FST nr. 8/2025, dags. 5. nóvember sl., hafði stofnunin komist að þeirri niðurstöðu að beiðni Símans um að fá að flytja áskriftaríþróttaefni Sýnar, þ.m.t. enska boltann, um sjónvarpsdreifikerfi Símans teldist eðlileg og sanngjörn beiðni. Í því máli féllst FST hins vegar á að það með Sýn að Síminn skyldi greiða eðlilegt endurgjald fyrir flutninginn þar sem um áskriftarstöð væri að ræða, þar sem framangreint ákvæði 47. gr. gerði ráð fyrir endurgjaldi í tilviki áskriftarrása.
Annað megin ágreiningsefni málsins sneri að kröfu Sýnar um að FST ákvarðaði eðlilegt endurgjald fyrir flutningsrétt Símans að umræddri frístöð. Eins og fyrr greinir var það niðurstaða FST að ákvæði 47. gr. fjölmiðlalaga, sem kveður á um endurgjald vegna flutnings línulegs myndefnis, geri aðeins ráð fyrir að fjölmiðlaveita fái endurgjald fyrir flutningsrétt fjarskiptafyrirtækis í tilviki áskriftarefnis, þ.e. efnis sem neytendur þurfa að greiða fyrir, en ekki í tilvikum opinna frírása.
Sá mikilvægi munur er á flutningsréttarbeiðnum Símans í þessum tveimur málum að það mál sem hér um ræðir varðar opna línulega frírás á meðan hitt málið varðar íþróttaáskriftarstöðvar Sýnar. Þar til mál þessi komu upp í júlí sl. tíðkaðist það um í u.þ.b. tvo áratugi milli félaganna að það félag sem flutti sjónvarpsútsendingar gagnaðilans fékk greitt fyrir það frá viðkomandi fjölmiðlaveitu, þar sem kostnaðurinn féll fyrst og fremst til hjá viðkomandi dreifiveitu. Þannig hefur Sýn greitt Símanum fyrir að flytja línulegt myndefni Sýnar. Í kjölfar þessa máls hætti Síminn að innheimta endurgjald af Sýn fyrir flutning á opnu rás Sýnar og flytur Síminn nú rásina án endurgjalds. Nú krefst Sýn þess að Síminn greiði Sýn fyrir það að Síminn flytji rásina. Þá má geta þess að Síminn greiðir Sýn fyrir að flytja opnu sjónvarpsstöð Símans um sjónvarpsdreifikerfi Sýnar, rétt eins og Sýn greiddi Símanum fyrir slíkan flutning áður en til þessa máls kom.
FST þekkir engin dæmi um það innanlands, og erlendis frá, að dreifingaraðilar (fjarskiptafyrirtæki) þurfi að greiða fjölmiðlaveitum fyrir að flytja opnar sjónvarpsútsendingar um dreifikerfi sín. Meginreglan hefur verið öfug, þ.e. að fjölmiðlaveitur greiði fyrir flutninginn ef um greiðslur er á annað borð að ræða. Hefur þá verið litið svo á að það sé viðkomandi fjölmiðlaveitu í hag að dreifing efnisins sé sem víðtækust, þar sem slíkar stöðvar fjármagna sig fyrst og fremst á auglýsingatekjum og kostun, þar sem ekki er um áskriftartekjur að ræða. Þess má geta að rétt tæplega 40 þúsund heimili notast við IPTV kerfi Símans og mörg þúsund þeirra horfa á fréttir Sýnar dag hvern.
Það var eins og áður segir niðurstaða FST að flutningsréttarbeiðni Símans teldist eðlileg og sanngjörn. Meginmarkmið umrædds flutningsréttarákvæðis eru að stuðla að valfrelsi neytenda við val á efnis- og dreifiveitum og að standa vörð um samkeppni á sjónvarps- og fjarskiptamörkuðum. Vísar verndarandlagið til almannahagsmuna á kostnað hagsmuna einstakra fjölmiðlaveitna, sérstaklega þeirra sem einnig stunda fjarskiptastarfsemi. Markmiðin eiga að koma í veg fyrir að það ástand skapist að notendur standi frammi fyrir því að við val á efnisveitu eða fjarskiptafyrirtæki (dreifiveitu) takmarkist aðgangur þeirra að myndefni. Mikilvægt þykir að neytendur geti valið þær efnis- og dreifiveitur sem þeir kjósa, óháð efninu. Var ákvæðinu sérstaklega ætlað, að gefnu tilefni, að draga úr áhrifum lóðrétts eignarhalds á efnis- og dreifiveitum.
FST horfði einnig til jafnræðisreglu þeirrar sem fram kemur í 1. mgr. 46. gr. fjölmiðlalaga. Þar kemur fram að fjölmiðlaveita skuli gæta jafnræðis hvað slíkan flutnings varðar gagnvart sjálfri sér og tengdu fjarskiptafyrirtæki annars vegar og gagnvart ótengdu fjarskiptafyrirtæki sem óskar flutnings hins vegar. Þar sem Sýni dreifir og hyggst áfram dreifa umræddu efni á eigin IPTV kerfi (og sjónvarpsappi), en útiloka dreifingu um slíkt kerfi Símans fæli það að mati FST í sér brot gegn umræddri jafnræðisreglu. Telur FST að mismunun sú sé lóð á vogaskálar þess að beiðnin uppfylli umrædd skilyrði.
Þá var það niðurstaða FST að þrátt fyrir að OTT lausnir (öpp) við myndmiðlun væru komnar fram úr IPTV hvað fjölda varðar sé ekkert sem bendi til annars en að IPTV kerfi verði áfram mikilvægur valmöguleiki fyrir notendur hér á landi á næstu árum, sérstaklega fyrir eldri aldurshópa og fólk í viðkvæmri stöðu. Annað hvert heimili notar ennþá myndlykla (IPTV) til að nálgast sjónvarpsefni. FST lét framkvæma fyrir sig neytendakönnun sem leiddi þetta í ljós, auk þess sem þar kom fram að um 40% svarenda noti IPTV sem helstu leið til sjónvarpsáhorfs. Féllst FST því ekki á það sjónarmið Sýnar að IPTV væru orðin eða væru við það að verða úreld leið til sjónvarpsáhorfs, enda væri það ekki í samræmi við rauntölur né hegðun Sýnar, sem hampaði IPTV lausn sinni ekki síður en sjónvarpsappi félagsins. Fjölmiðlanefnd, sem skilaði inn lögbundnu áliti í málinu, var sammála ofangreindu mati FST á mikilvægi IPTV.
Þá var það mat FST að þeir sem vildu áfram nota myndlykla hefðu því þurft að færa sig til Sýnar, og þá væri hætta á að mörg heimili myndu einnig færa fjarskiptin yfir sökum áhrifa vöndla Sýnar sem innihalda bæði sjónvarps- og fjarskiptaþjónustu, þ.m.t. internetþjónustu.
Hitt meginágreiningsefni málsins, líkt og í hinu málinu, hverfist um þá staðreynd að Sýn hefur boðið Símanum heildsöluaðgang að sjónvarpsappi Sýnar (OTT lausn), sem eina valkostinn, á sama tíma og Sýn viðheldur eigin IPTV lausn. Telur Sýn að þar með sé flutningsréttarbeiðni Símans ekki eðlileg og sanngjörn. Var það niðurstaða FST að framangreint boð Sýnar tæmi ekki flutningsrétt Símans þannig að hún teldist ekki uppfylla framangreind skilyrði. Slík lausn væri ekki jafngild dreifingu um IPTV kerfi fyrir stóra hópa landsmanna, líkt og Fjölmiðlanefnd tekur undir, enda eiga tilteknir hópar ekki auðvelt með að tileinka sér tækninýjungar, auk þess sem aðrir kjósa IPTV fram yfir OTT af ýmsum ástæðum.
Vegna ofangreinds mætti búast við röskun hjá nokkuð stórum hópi notenda yrði lokað fyrir umræddar sjónvarpsútsendingar í IPTV kerfi Símans. Að mati FST er það ekki í samræmi við orðalag og markmið flutningsréttarákvæðisins að þau tugþúsund heimila sem áfram vilja nota myndlykla hafi aðeins val um myndlykla frá Sýn. Það er mat FST að Sýn væri ótvírætt að takmarka val fjölmargra heimila með því að loka fyrir sjónvarpsdreifingu um IPTV kerfi Símans og að þvinga mikinn fjölda þeirra til að gera breytingar á því hvernig þau haga sjónvarpsáhorfi sínu og koma inn á sjónvarpskerfi Sýnar, á sama tíma og Sýn bryti gegn framangreindri jafnræðisreglu.
Að lokum tók FST afstöðu til samkeppnislegra sjónarmiða er tengjast umræddri flutningsréttarbeiðni. Er það niðurstaðan að slík sjónarmið styðji það að hún teljist eðlileg og sanngjörn. Eitt meginmarkmið flutningsréttarákvæðisins, fyrir utan að auka valfrelsi neytenda, er að tryggja samkeppni á sjónvarps- og fjarskiptamarkaði. Í áliti Samkeppniseftirlitsins í málinu er tekið undir það hver þessi meginmarkmið eru. Þá vísaði Samkeppniseftirlitið til þess að lykillinn að samkeppni og valfrelsi neytenda sé að sambærilegt efni sé í boði í ólíkum fjarskiptakerfum og að ákvæði fjölmiðlalaga um flutningsrétt séu mikilvæg til að tryggja virka samkeppni á fjarskipta- og fjölmiðlamörkuðum.
Það er niðurstaða FST að Sýn sé ekki að bjóða Símanum flutningsrétt á umræddum sjónvarpsútsendingum, heldur aðeins heildsölu á sjónvarpsdreifingu Sýnar. Ef þetta yrði að veruleika yrði engin samkeppni um flutning á umræddu efni. Sem aftur hefði svo áhrif á fjarskiptamarkaði á borð við internetmarkað og mögulegan markað fyrir vöndla sem sjónvarps- og fjarskiptaþjónustu. Því væri mikilvægt fyrir önnur fjarskiptafyrirtæki, sérstaklega þau sem starfræktu IPTV sjónvarpsdreifikerfi, að fá slíkt efni til dreifingar.
Að auki myndi aðgerð Sýnar leiða til þess að viðskiptavinir Símans þyrftu að ganga í viðskiptasamband við Sýn til að geta virkjað og notað sjónvarpsapp Sýnar. Slíkt fyrirkomulag væri afar óæskilegt út frá samkeppnislegum sjónarmiðum.
Með hinni yfirlýstu aðgerð Sýnar er að mati FST farið gegn einu meginmarkmiði flutningsréttarákvæðisins, þ.e. að standa vörð um samkeppni á sjónvarps- og fjarskiptamörkuðum. Mikilvægt er að samkeppni ríki milli dreifiveitna og að fjölbreyttar dreifileiðir standi neytendum til boða, óháð sjónvarpsefni.
Þá hafnar FST þeim málsástæðum Sýnar að túlka beri flutningsréttarbeiðni Símans samræmisskýringu við EES rétt, að slíkar beiðnir geti aðeins náð til samfélagslega mikilvægra viðburða eða aðeins viðburða sem hafa fjölræði og menningarpólitík að markmiði eða að flutningsréttur Símans takmarki þjónustufrelsi Sýnar samkvæmt EES samningnum. Um er að ræða séríslenskt ákvæði sem á sér ekki stoð í EES rétti og því ekki unnt að skýra það samræmisskýringu við EES rétt. Þetta er staðfest í áliti Fjölmiðlanefndar.
Með bráðabirgðaákvörðun FST nr. 6/2025 þann 30. júlí sl. féllst stofnunin á umræddar flutningsréttarbeiðnir til bráðabirgða. Með úrskurði úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála, dags. 4. september sl., var bráðabirgðaákvörðun FST staðfest, að öðru leyti en því að tíminn sem stofnunin ætlaði sér til að ljúka endanlegri ákvörðun í málinu var styttur nokkuð, þ.e. í til 1. desember nk. Nú liggur fyrir endanleg niðurstaða FST um báða þætti málsins fyrir tilskilið tímamark.
Ákvörðun Fjarskiptastofu nr. 9/2025
Fréttin hefur verið uppfærð.