Samráð við ESA um markaðsgreiningar á heildsölumörkuðum fyrir heimtaugar og bitastraumstengingar
Samráð við ESA um markaðsgreiningar á heildsölumörkuðum fyrir heimtaugar og bitastraumstengingar
Þann 5. apríl sl. sendi Fjarskiptastofa (FST) til Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) drög að ákvörðun er lýtur að markaðsgreiningum á heildsölumörkuðum fyrir heimtaugar (staðaraðgang með fasttengingu, markaður 3a) og bitastraumstengingar (miðlægan aðgang með fasttengingu fyrir fjöldaframleiddar vörur, markaður 3b).
FST hefur farið í heildarendurskoðun á markaðsgreiningu stofnunarinnar sbr. ákvörðun FST nr. 5/2021 í ljósi nýlegra breytinga sem orðið hafa á íslenskum fjarskiptamörkuðum og nýjum fjarskiptalögum.
Í þeim drögum að ákvörðun sem nú fara í samráð til ESA kemur fram fyrirhuguð niðurstaða FST:
Markaður 3a, heildsölumarkaður fyrir staðaraðgang með fasttengingu
Samkvæmt skilgreiningu á þessum markaði samanstendur hann af aðgangsnetum (heimtaugum) á fastlínu, bæði kopar og ljósleiðara, og tengdri aðstöðu, ásamt sýndarlausnum sem uppfylla sömu þarfir og heimtaugaleiga (VULA).
FST framkvæmdi ítarlega landfræðilega greiningu á umræddum markaði í öllum 64 sveitarfélögum landsins og komst að þeirri niðurstöðu að aflétta bæri kvöðum í 29 sveitarfélögum því þar væri komin á virk samkeppni á viðkomandi markaði eða stefni í virka samkeppni á líftíma greiningarinnar. Samkvæmt ákvörðunardrögunum útnefnir FST Mílu sem fyrirtæki með umtalsverðan markaðsstyrk í 26 sveitarfélögum, Tengir í 8 sveitarfélögum og Ljósleiðarann í 1 sveitarfélagi. Þá eru lagðar viðeigandi kvaðir á þessi fyrirtæki. Í þeim sveitarfélögum þar sem Tengir og Ljósleiðarinn eru útnefnd sem markaðsráðandi fyrirtæki er kvöðum jafnframt aflétt af Mílu.
Markaður 3b, heildsölumarkaður fyrir miðlægan aðgang með fasttengingu fyrir fjöldaframleiddar vörur
Markaður þessi samanstendur af ýmsum bitastraumslausnum sem veita tengingu milli endanotanda og aðgangspunkts sem er miðlægur í fjarskiptaneti og notaðar eru til að veita hefðbundinn internetaðgang ásamt tengdri þjónustu m.a. IP síma og IPTV. Er þá um að ræða bitastraumslausnir um ljósleiðaranet, koparnet sem styðjast við VDSL og farnetslausnir sem styðjast við nettengda beina um 4G, 4,5G og 5G farnet, en það er nýjung að slík farnetslausn veiti framangreindum fastanetslausnum staðgöngu á þessum markaði.
FST framkvæmdi ítarlega landfræðilega greiningu á umræddum markaði í öllum 64 sveitarfélögum landsins og komst að þeirri niðurstöðu að aflétta bæri kvöðum í 31 sveitarfélagi því þar væri komin á virk samkeppni á viðkomandi markaði eða stefni í virka samkeppni á líftíma greiningarinnar. FST útnefnir Mílu sem fyrirtæki með umtalsverðan markaðsstyrk í 31 sveitarfélagi, Ljósleiðarann í 1 sveitarfélagi og Austurljós í 1 sveitarfélagi. Þá eru lagðar viðeigandi kvaðir á þessi fyrirtæki. Í þeim sveitarfélögum þar sem Ljósleiðarinn og Austurljós eru útnefnd sem markaðsráðandi fyrirtæki er kvöðum jafnframt aflétt af Mílu.
Drög að ofangreindri ákvörðun hafa nú verið send til ESA og annarra eftirlitsstofnana á EES-svæðinu með vísan til 1. mgr. 28. gr. laga nr. 75/2021 um Fjarskiptastofu. ESA og aðrar eftirlitsstofnanir á EES-svæðinu hafa einn mánuð til að setja fram athugasemdir við ákvörðunardrögin. Eftir það getur FST formlega tekið ákvörðun um viðkomandi markaði nema fram komi óskir frá ESA um að FST dragi ákvörðunardrögin til baka. Ekki er gert ráð fyrir að innlendir hagsmunaaðilar geri athugasemdir við ákvörðunardrögin að þessu sinni, en FST hefur þegar gefið markaðsaðilum kost á að gera athugasemdir við drög stofnunarinnar í þremur innanlandssamráðum.
Samráðsskjölin á íslensku og ensku (PDF skjöl):
Drög að ákvörðun um M3a og M3b.pdf
Viðauki A_Markaðsgreining M3aogb Formleg tilkynning til ESA til birtingar.pdf
Viðauki B_Svör við athugasemdum markaðsaðila til birtingar.pdf
Viðauki C_Uppfærsla á tölfræði sveitarfélaganna.pdf
Draft Decision on M3a and M3b.pdf
Appendix A_Market Analysis of M3ab Formal notice to ESA_Public.pdf
Appendix B_Results of national consultation on markets M3ab_Public.pdf
Appendix C_Updated market share data_Public.pdf