Samráð um stefnumótun um áreiðanleg og áfallaþolin net
Samráð um stefnumótun um áreiðanleg og áfallaþolin net
Fjarskiptastofa efnir til samráðs um stefnumótun varðandi áreiðanleika og áfallaþol fjarskiptaneta. Fjarskiptastofa hefur um nokkurt skeið unnið að drögum að stefnuskjali sem ætlað er að verða grundvöllur að sameiginlegri sýn stjórnvalda og fjarskiptamarkaðarins um markmið varðandi málefnið. Drögin eru nú birt á vefsíðu FST (sjá hlekk hér að neðan) og kallað er eftir öllum athugasemdum og sjónarmiðum sem aðilar kunna að hafa varðandi drögin.
Drögin fela m.a. í sér markmiðssetningu um aukinn áreiðanleika og áfallaþol varðandi:
- Aðgang að netþjónustu endanotanda
- Áreiðanleika og áfallaþol stofnneta
- Farnet og aðgangsnet og tengingu þeirra við stofnnet
- Tengingar við önnur lönd og áreiðanleika internetsins
Tekið skal fram að ekki er um að ræða drög að reglusetningu eða stjórnvaldsákvörðun, heldur er leitast við að setja fram sameiginlegar leiðbeiningar um hvað geti talist besta framkvæmd (e. best practice) við það að tryggja áreiðanleg og áfallaþolin fjarskipti og skilgreina mælanleg markmið í því sambandi.
Það er von Fjarskiptastofu að geta átt gott samstarf við fjarskiptafyrirtæki um mótun þessara viðmiða og innleiðingu. Fjarskiptastofa telur að aukin vitund um áreiðanleika og áfallaþol neta og samstillt átak um stöðuga þróun í þessum málaflokk muni koma samfélaginu í heild til góða, en einnig hafa mikinn ávinning í för með sér fyrir þá aðila sem reka hvers kyns fjarskiptaþjónustu í landinu.
Fjarskiptastofa óskar eftir sjónarmiðum allra sem telja sig hafa hagsmuni tengda þessu málefni. Þess er óskað að umsagnir berist FST eigi síðar en 22. nóvember 2024.
Eftir að athugasemdafresti lýkur mun Fjarskiptastofa taka afstöðu til athugasemda. Stefnt er að því að birta endanlegt stefnuskjal á komandi mánuðum.
Tekið er við skriflegum umsögnum á fjarskiptastofa(hjá)fjarskiptastofa.is og nánari upplýsingar veitir Njörður Tómasson, njordur(hjá)fjarskiptastofa.is