Sameiginlegur fundur Fjarskiptastofu og systurstofnunar í Litháen styrkir evrópskt samstarf
Sameiginlegur fundur Fjarskiptastofu og systurstofnunar í Litháen styrkir evrópskt samstarf
Fjarskiptastofa tók nýverið á móti fulltrúum Communication Regulatory Authority í Litháen (RRT) á sameiginlegum fundi þar sem rætt var um þróun regluverks og samvinnu á sviði stafrænna lausna. Fundurinn styrkti tengsl stofnananna og skapaði dýrmæt tækifæri til að miðla reynslu og góðum starfsvenjum milli landa. Fjarskiptastofa og RRT eru eftirlitsstjórnvöld á sviði rafrænna auðkenninga og traustþjónustu, í samræmi við eIDAS-regluverk Evrópusambandsins.
Á fundinum var sérstök áhersla lögð á þennan málaflokk í ljósi nýrrar reglugerðar Evrópusambandsins, svonefndrar eIDAS 2, og tilkomu stafræns evrópsks veski (European Digital Identity Wallet). Reglugerðin felur í sér veigamiklar breytingar, meðal annars með innleiðingu veskis sem gerir notendum kleift að auðkenna sig, undirrita rafrænt og deila skjölum á öruggan og samhæfan hátt innan Evrópu.
Jafnframt er gert ráð fyrir fjölgun og eflingu traustþjónusta í umræddu regluverki, en traustþjónustur á borð við rafræn innsigli, tímastimpla, vottorð og örugga skjalageymslu eru ómissandi grunnstoðir í stafrænnri þróun. Þær tryggja óbreytanleika gagna, sanna uppruna skjala og staðfesta nákvæma tímasetningu. Traustþjónustur skapa þannig traust á milli aðila og gera sjálfvirka gagnavinnslu mögulega með öruggum hætti.
Eftirlitsstjórnvöld eins og Fjarskiptastofa fá aukið hlutverk samkvæmt eIDAS 2, meðal annars þegar kemur að fullgildingu, skráningu og eftirliti með þjónustuveitendum og hinu stafræna veski. Þannig eiga stjórnvöldin að tryggja að þjónusturnar uppfylli samræmd öryggis- og tækniskilyrði sem gilda innan EES-svæðisins.
Samstarf Íslands við Eystrasaltsríkin er sérstaklega mikilvægt í þessu samhengi, þar sem ýmsar lausnir og þjónustutegundir á sviði traustþjónustu og auðkenningar hér á landi byggja að hluta á þjónustu fullgildra aðila í þeim ríkjum.
Fjarskiptastofa þakkar samstarfsfólki sínu í Litháen fyrir uppbyggilegt samtal og hlakkar til áframhaldandi samstarfs á komandi misserum.