Nýr samstarfssamningur um netöryggi tók gildi 1. október
Nýr samstarfssamningur um netöryggi tók gildi 1. október
Þann 1. október síðastliðinn tók gildi nýr samningur um áframhaldandi samstarf á vettvangi Eyvör NCC‑IS. Samninginn gera innlendir aðilar og Hæfnissetur Evrópu í netöryggi (ECCC) og felur í sér markmið um að efla netöryggi, þekkingu og hæfni hér á landi.
Samstarfið byggir á sex skilgreindum vinnupökkum, þar sem Fjarskiptastofa ber ábyrgð á þremur þeirra og aðrir samstarfsaðilar á öðrum. Heildarverðmæti samningsins er rúmar 500 milljónir króna.
Netöryggissvið Fjarskiptastofu fer með heildarstjórn verkefnisins og ber ábyrgð á skilvirkri framkvæmd. Sérstök áhersla er lögð á að styrkja íslenska netöryggissamfélagið, efla samstarf milli stjórnvalda og atvinnulífs, byggja upp norrænt samstarf og styðja við innleiðingu og framkvæmd evrópskrar netöryggislöggjafar.
Í samstarfinu tekur Háskóli Íslands þátt með því að greina fræðsluþörf atvinnulífs og samfélags í tengslum við netöryggi og rannsaka nýjar áskoranir sem tengjast tækniframförum og stafrænni umbreytingu. Aftur á móti mun Háskólinn í Reykjavík leiða áframhaldandi uppbyggingu og þróun námsleiða og námskeiða á sviði netöryggis og styrkja rannsóknaraðstöðu.
Að auki verður tekið á málum sem varða stuðning við smá- og meðalstór fyrirtæki, innviði og opinberar stofnanir með því að úthluta styrkjum til verkefna sem miða að auknum vörnum, fræðslu og þróun á sviði netöryggis.
Fjarskiptastofa lýsir mikilli ánægju með samninginn og telur hann mikilvægt skref í átt að markvissri uppbyggingu netöryggishæfni samfélagsins.