Niðurstaða samráðs um breytingar á tíðniheimildum, uppbyggingu neyðar- og öryggiskerfis og farnetssamband á stofnvegum
Niðurstaða samráðs um breytingar á tíðniheimildum, uppbyggingu neyðar- og öryggiskerfis og farnetssamband á stofnvegum
Fjarskiptastofa (FST) hefur síðan í desember 2024 staðið að tveimur samráðum um breytingar á skilyrðum tíðniheimilda Nova, Símans, Sýnar og Öryggisfjarskipta. Tilefni þessa var að Öryggisfjarskipti hafa ekki fengið fjármagn til þess að standa við upphafleg skilyrði 700MHz tíðniheimildar sinnar varðandi uppbyggingu neyðar- og öryggiskerfis og þátttöku í uppbyggingu nýrra sendastaða við stofnvegi. Eftir fyrra samráð sem lokið var í byrjun apríl var ljóst að ekki væri von á fjármögnun þessara verkefna á næstunni og efndi því Fjarskiptastofa til nýs samráðs þar sem kynntar voru ívilnanir sem áttu að gera Nova, Símanum og Sýn kleift að klára útbreiðslu við stofnvegi án þess að kostnaður yrði meiri en áætlaður var á hvert fyrirtæki í upphafi.
Fjarskiptastofa hefur nú lokið yfirferð þeirra umsagna sem bárust í aukasamráðinu. Helstu niðurstöður eru eftirfarandi:
- Tilslökun á útbreiðsluskilyrðum: Kvaðir um uppbyggingu á öllum hálendisvegum falla niður. Útbreiðsluskylda á stofnvegum verður 99% í árslok 2027 og 100% í árslok 2028. Tímamörk fyrir 30 Mb/s og 150 Mb/s hraða frestast um fimm ár.
- Forgangsröðun og hlutverk Öryggisfjarskipta: Öryggisfjarskipti mun áfram sinna skipulagningu verkefnisins án endurgjalds og án þess að vera aðili að fjárfestingum. Öryggisfjarskipti mun gera tillögu um forgangsröðun en ber að leita umsagna tiltekinna aðila, m.a. landshlutasamtaka sveitarfélaga. Tekið verði mið af vetrarþjónustu vega við forgangsröðun. Taka ber ítrasta tillit til tilögu öryggisfjarskipta við uppbyggingu við stofnvegi.
- Tæknileg sveigjanleiki og samnýting: Heimilt verður að nota „utan-nets“ lausnir, svo sem litla sendastaði með eigin rafmagnsframleiðslu og gervihnattatengingu, ef hraði og uppitími er ásættanlegur. Samnýting sendabúnaðar (MOCN) og sendastaða verður heimil á öllum nýjum sendastöðum óháð umferðartölum. FST mun leggja áherslu á samstarf við önnur stjórnvöld, eins og Vegagerðina, til að liðka fyrir aðgangi að landi og samnýtingu innviða.
- Tíðniheimild Öryggisfjarskipta: ÖF mun halda 700 MHz tíðniheimild sinni þrátt fyrir að tímarammi fyrir nýtt neyðar- og öryggiskerfi liggi ekki fyrir. Heimildin verður tekin til endurskoðunar árið 2030 ef áform um uppbyggingu liggja ekki fyrir þá. Til að tryggja skilvirka nýtingu tíðninnar verður ÖF skylt að auglýsa aðgang að henni og skilmála aðgangs fyrir næstu áramót.
Drög að lokagerð breytinga á skilyrðum tíðniheimilda Nova, Símans, Sýnar og Öryggisfjarskipta eru nú í umsagnarferli hjá félögunum.