Hoppa yfir valmynd

Niðurstaða samráðs Fjarskiptastofu um tíðnir og nýsköpun

Fréttasafn
12. febrúar 2026

Niðurstaða samráðs Fjarskiptastofu um tíðnir og nýsköpun

Fjarskiptastofa birtir hér niðurstöðu samráðs sem efnt var til þann 27. maí 2025 í þeim tilgangi að opna á umræðu um tækifæri og nýsköpun í þráðlausum fjarskiptum framtíðarinnar og jafnframt til að kanna áhuga og væntingar um ráðstöfun tiltekinna  tíðnisviða.

Markmið samráðsins var að reyna að tryggja að úthlutun þessara tilteknu tíðnisviða myndi stuðla að virkri nýtingu tíðnirófsins og framþróun fjarskiptamarkaðarins hér á landi.

Auk þess að fjalla um tiltekin tíðnisvið fjallaði samráðið um það hvernig best væri að nýta þessa auðlind í framtíðinni m.t.t. þeirra möguleika sem næstu kynslóðar fjarskiptanet og tengd tækni bjóða upp á.

FST bárust góðar og oft á tíðum ítarlegar umsagnir sem hafa verið teknar saman og m.a. með hliðsjón af þeim, lagt fram áætlun um fyrirhugaða ráðstöfun þeirra tíðnisviða sem samráðið tók sérstaklega til.

Í töflunni með fréttinni má sjá samantekt á því hvernig og hvernær FST hefur hugsað sér að ráðstafa tíðnisviðunum sem samráðið tók sérstaklega til eða hvort ætlunin er að bíða með frekari ákvörðun og þá mögulega eftir frekara samráð.

Hér má lesa niðurstöðurnar í heild sinni - Niðurstöður samráðs um framtíð þráðlausra fjarskipta á Íslandi.