Neytendakönnun Fjarskiptastofu um helstu leiðir heimila til að horfa á sjónvarp
Neytendakönnun Fjarskiptastofu um helstu leiðir heimila til að horfa á sjónvarp
Á tímabilinu 21. ágúst til 1. september sl. framkvæmdi Gallup neytendakönnun fyrir FST þar sem spurt var um helstu leiðir heimila við að horfa á sjónvarp. Markmið könnunarinnar var að kanna hvert mikilvægi myndlykla væri fyrir neytendur, hvort ákveðnir hópar neytenda notuðu þá frekar en aðrir og hvort það myndi valda neytendum vandkvæðum ef þjónustu um myndlykla yrði hætt og sjónvarpsáhorf færi alfarið fram um smáforrit og snjalltæki.
Álykta má út frá niðurstöðum könnunarinnar að myndlyklar innlendrar sjónvarpsþjónustu eru mikilvæg leið neytenda fyrir sjónvarpsáhorf. Umtalsverður hluti neytenda notar þá sem sína helstu leið fyrir sjónvarpsáhorf og yfir helmingur þess hóps notar ekki aðra leið við sjónvarpsáhorf en myndlykilinn. Notkun þeirra er aldurstengd og eykst með hækkandi aldri. Notkun annarra tækja en myndlykla við sjónvarpsáhorf er að sama skapi mikil meðal þeirra sem eru yngri en 50 ára. Notendur myndlykla eru einnig líklegri en aðrir til að telja það valda sér vandkvæðum ef snjalltæki og snjallsjónvörp tækju alfarið við af myndlyklum og sá ótti er einnig vaxandi með aldri.
Nánar um niðurstöður könnunarinnar
Helstu niðurstöður voru að myndlyklar eru enn mikilvæg leið heimila við að horfa á sjónvarp og voru myndlyklar frá sjónvarpsþjónustu með rétt rúm 40% svara við spurningunni um helstu leið við áhorf, þar af Síminn 28,4% og Sýn 11,8%. Þess ber að geta að í þessu svari er ekki greint hvort myndlykilinn sé tengdur við lokað IPTV net eða tengdur við almenna internettengingu (e. Over The Top, OTT).
Utanáliggjandi snjalltæki, svo sem AppleTV, Chromecast, Xiaomi og álíka voru næst algengust með 27,6% og smáforrit notuð á snjallsjónvarpi í þriðja sæti með 22,8%.
Helsta leið við sjónvarpsáhorf er mjög breytileg eftir lýðfræðilegum hópum, en aldur skýrir mestan hluta þessa breytileika. Meirihluti þeirra sem eru yngri en 50 ára notar aðrar leiðir en myndlykla, einkum utanáliggjandi snjalltæki eða smáforrit í sjónvarpi. Hjá 50–59 ára eru hlutföllin nokkuð jöfn, flestir þó í þeim aldurshópi noti myndlykla frá Símanum. Meðal 60 ára og eldri er hins vegar skýrt að myndlyklarnir eru helsta leiðin til að horfa á sjónvarp en það hlutfall er ríflega 80% í elsta aldurshópnum.
Tæplega helmingur heimila notar einnig aðrar leiðir til að horfa á sjónvarp eða 47,7%. Þar með segjast 52,3% svarenda ekki nota aðra leið en þá sem nefnd er sú helsta.
Þegar svör þeirra sem nota enga aðra leið en sína helstu eru skoðuð eru þau heimili þar sem myndlykill er helsta leiðin sömuleiðis ólíklegust til að nota aðra leið til sjónvarpsáhorfs. Meðal þeirra sem nota myndlykil frá Símanum eru 59% sem ekki nota aðra leið en myndlykilinn til að horfa á sjónvarpsefni og 53% notenda myndlykils Sýnar.
Þeir svarendur sem nefndu að fleiri en ein leið væri notuð við sjónvarpsáhorf á heimilinu voru spurðir hvaða leiðir það væru. Þar kom fram að algengasta viðbótarleiðin til sjónvarpsáhorfs er í gegnum heimilistölvu, spjaldtölvu, síma eða önnur sambærileg tæki sem ekki eru ætluð fyrst og fremst til sjónvarpsáhorfs. Næst á eftir koma smáforrit í snjallsjónvarpi, þar á eftir utanáliggjandi tæki en myndlyklar sjónvarpsþjónustu eru síst notaðir sem viðbótarleið.
Neytendum finnst almennt auðvelt að nota sína helstu leið til sjónvarpsáhorfs, en af þeim sem finna fyrir erfiðleikum eru tæknileg vandamál, flókið notendaviðmót/erfitt að finna efni og það að stýra áhorfi á meðan horft er þeir þrír valmöguleikar sem helst voru valdir. Þessi svör eru hins vegar fá.
Þá var spurt um kaup á sjónvarpsþjónustu, en í þeirri spurningu var hægt að velja marga valmöguleika. Um 55% heimila kaupa erlendar streymisveitur, rétt tæp 45% kaupa þjónustu af Símanum og rétt um 32% af Sýn. Yngra fólk kaupir erlendar streymisveitur í meira mæli, 76% svarenda í 18-29 ára hópnum og 72% í 30-39, en minna af Símanum, 26% og 35% í sömu hópum. Þetta snýst svo við með hækkandi aldri, en í hópnum 60-69 ára eru 61% kaupendur á þjónustu Símans og 64% hjá 70 ár og eldri, en erlendar veitur eru keyptar hjá 30% og 18% þessara hópa. Kaup á sjónvarpsþjónustu Sýnar virðast ekki aldurstengd á sama máta. Þar eru 30-35% viðskiptavinir innan allra aldurshópa.
Í lokin var spurt hvort það myndi valda heimilinu vandkvæðum ef eingöngu yrði hægt að horfa á sjónvarp um snjallsjónvörp eða snjalltæki, þ.e. að þjónustu um myndlykla yrði hætt. Þar svöruðu 62,6% neytenda að þau töldu svo ekki vera, 15,6% voru hlutlaus og 21,8% töldu að vandkvæði yrðu nokkur eða mikil. Eins og með flestar spurningar í þessari rannsókn er þetta hlutfall mjög breytilegt eftir aldri. Þannig eru 33% neytenda í 60-69 ára hópnum á því að þetta yrði þeim vandkvæðum bundið og 48% þeirra sem eru 70 ára og eldri. Þá eru þau sem nota myndlykla sem sína helstu leið einnig á þessari skoðun eða 46% þeirra sem nota myndlykil Símans sem sína helstu leið og 45% þeirra sem nota myndlykil Sýnar.
Þau vandkvæði sem helst eru nefnd eru það að þurfa að læra á valmyndakerfi og viðmót í nýju tæki, að þurfa að kaupa snjalltæki eða snjallsjónvarp og að þurfa að gerast áskrifandi í gegnum smáforrit. Þá hafði þessi hópur einnig áhyggjur af því að nettenging væri of óstöðug eða hæg fyrir streymi og af kostnaði við að fá hraðari tengingu