Neyðarlínunni ber að taka þátt í kostnaði við sendingu SMS váboða í almannavarnaviðvörunarkerfi
Neyðarlínunni ber að taka þátt í kostnaði við sendingu SMS váboða í almannavarnaviðvörunarkerfi
Úrskurðarnefnd fjarskipta- og póstmála hefur úrskurðað í kærumáli nr. 7/2024, en Neyðarlínan ohf. hafði kært ákvörðun Fjarskiptastofu nr. 13/2024 um að fjarskiptafélögunum væri heimilt að innheimta útlagðan kostnað, að því er varðar lúkningar- og reikigjöld, við útsendingu neyðarboða á vegum Neyðarlínunnar. FST leit svo á að orðalagið „án endurgjalds“ í 99. grein fjarskiptalaga væri óskýrt og taldi að það tæki til endurgjaldsleysi fyrir endanotendur en ekki opinbera viðbragðsaðila. Það hefði líklega ekki verið vilji löggjafans að kostnaður vegna neyðarboða félli á farnetsfyrirtækin. Ef sú hefði verið ætlunin hefði það þurft að vera tekið skýrt fram í fjarskiptalögum eða lögskýringargögnum.
Undir þetta tók úrskurðarnefndin, orðalagið væri óskýrt og að þörf væri á að tilgreina frekar hvaða þættir sendingar neyðarboða ættu að vera án endurgjalds. Vísað nefndin til tilskipunar (ESB) 2018/1972 (fjarskiptakóðinn) sem fjallar m.a. um samræmingu neyðarviðvörunarkerfa innan sambandsins. Þar kemur fram að endanotendur skuli ekki bera kostnað af móttöku neyðarboðanna, en tilskipunin tekur ekki afstöðu til þess hver eigi að greiða þennan kostnað í staðinn.
Hingað til hefur framkvæmdin verið sú að Neyðarlínan hefur staðið straum af þeim kostnaði sem fjarskiptafélögin verða fyrir þegar send eru út neyðarboð. Ekki virðist hafa verið gerður ágreiningur um þetta fyrirkomulag fyrr en tveimur árum eftir að fjarskiptalögin tóku gildi. Nefndin taldi að lagaákvæðið hafi fremur verið lögleiðing á ríkjandi fyrirkomulagi en innleiðing á nýjum skyldum fyrir fjarskiptafélögin. Ef staðið hefði til að breyta því og leggja ı́þyngjandi kvöð á þau hefði það þurft að koma fram berum orðum og tilgreina betur hvað ı́ þvı́ fælist. Fallist var á túlkun FST að ekki hefði verið ætlunin að leggja slíkan kostnað á fjarskiptafélögin.
Hin kærða ákvörðun var staðfest óbreytt en úrskurðarnefndin beindi því jafnframt til stjórnvalda að endurskoða orðalag ákvæðisins eða gefa út nánari lýsingu hvað það fæli í sér.