Hoppa yfir valmynd

Neyðarlínan ohf. útnefnd sem alþjónustuveitandi fjarskiptatenginga

Fréttasafn
19. júní 2024

Neyðarlínan ohf. útnefnd sem alþjónustuveitandi fjarskiptatenginga

Fjarskiptafélagið Míla hf. hefur nýverið tilkynnt um að vinna sé hafin við að leggja niður eitt víðtækasta fjarskiptakerfi landsins en það er koparheimtaugakerfi félagsins. Koparheimtaugakerfið hefur þjónað landsmönnum í yfir 100 ár, fyrst fyrir talsíma en á síðari árum fyrir háhraða gagnaflutning með VDSL tækni. Áætlað er að rekstri kerfisins verði hætt á næstu misserum en þegar er hafin vinna við að taka úr rekstri götuskápa og símstöðvar þar sem mögulegt er að færa virkar kopartengingar sem eftir eru yfir á ljósleiðara.

Samkvæmt frumathugun FST þá ættu endanotendur í flestum tilvikum að fá fullnægjandi fjarskiptatengingu yfir farnet þegar kopartengingu nýtur ekki lengur við. Eins og staðan er í dag þá eru um 100 staðföng víðsvegar um landið sem fá ekki notið fullnægjandi farnetsþjónustu við niðurlagningu koparsins. Því þarf að grípa til sértækra ráðstafana til að koma upp fullnægjandi fjarskiptasambandi á viðkomandi stöðum. 

Í því skyni hefur Fjarskiptastofa ákveðið að útnefna Neyðarlínuna ohf. sem alþjónustuveitanda fjarskiptatenginga í þessum sérstöku tilvikum. Verður hlutverk Neyðarlínunnar að hafa umsjón með að slíkar tengingar verði settar upp ef þörf er á og að slíkt verði gert í samstarfi við önnur fjarskiptafyrirtæki eftir því sem kostur er. 

Ákvörðun FST nr. 6/2024

Viðauki (ekki birtur vegna trúnaðar)