Hoppa yfir valmynd

Neyðarlínan leiðir alþjónustuverkefni til að bæta fjarskipti víða um land

Fréttasafn
08. júlí 2025

Neyðarlínan leiðir alþjónustuverkefni til að bæta fjarskipti víða um land

Undanfarið hefur fjarskiptafélagið Míla hf. unnið að áfangaskiptri niðurlagningu á einu umfangsmesta fjarskiptakerfi landsins – koparheimtaugakerfi félagsins. Kerfið hefur þjónað Íslendingum í yfir heila öld, upphaflega sem burðarás talsímaþjónustu og síðar sem grunnur fyrir háhraðagagnaflutning með VDSL tækni.

Við þessa yfirfærslu á undirliggjandi tækni er gert ráð fyrir að í flestum tilvikum að notendur hafi áfram aðgang að viðunandi fjarskiptasambandi í gegnum farnet, þegar kopartengingu nýtur ekki lengur við, og ekki er mögulegt að færa tengingu yfir á ljósleiðarkerfi.

Mikilvægt er að tryggja að neytendum standi til boða tenging við almenna fjarskiptanetið almennt á landinu öllu. Slíkt stuðlar að búsetufrelsi og þá er fullnægjandi fjarskiptasamband öryggisatriði. Í byrjun árs 2024 var því gerð greining sem leiddi í ljós að huga þyrfti sérstaklega að sambandi fyrir 100 lögheimili og vinnustaði víðs vegar um landið sem gætu ekki treyst á nægjanlega góða farnetstengingu við lokun koparkerfisins.

Vorið 2024 útnefndi Fjarskiptastofa Neyðarlínuna ohf. sem alþjónustuveitanda fjarskiptatenginga til að mæta þessari þörf og koma á síma- og netaðgangsþjónustu í þeim tilvikum. Neyðarlínan skilar nú árlega fyrir þann 15. júní til FST kostnaðaráætlun sem tilgreinir  þau staðföng og áætlaðan kostnað. Þessi kostnaðaráætlun á að taka mið af árlegum fjárheimildum jöfnunarsjóðs alþjónustu eða sem nemur 48,8 millj. kr. ár hvert. Ef raunkostnaður fer undir eða yfir þetta viðmið skal mismunur kostnaðar færður yfir á næsta ár.

Alþjónustuútnefning gerir ráð fyrir þremur áföngum við að koma á bættu fjarskiptasambandi en þeir eru:  

A. Uppbygging farnetssenda
B. Aðrar lausnir (loftnet, endurvarpar o.s.frv.)
C. Einstakar fjarskiptatengingar sem falla ekki undir áfanga A eða B

Neyðarlínan hefur gert áætlun um uppsetningu farnetssenda á völdum stöðum sbr. áfanga A. Búið er að undirbúa og ákveða með uppsetningu tíu senda sem ná til 20 staðfanga auk annarra landssvæða og vega nærri, án eða með takmarkaða farnetsþjónustu. Reynt er að haga uppsetningu senda þannig að auk þess að koma á farnetsþjónustu á tilgreindum staðföngum náist einnig að bæta farnetsþjónustu á svæðum þar nærri svo sem vegum þar sem er þekkt að ökumenn lendi í vandræðum.  

Í þágu þessara verkefna hefur Fjarskiptastofa nú tvisvar úthlutað árlegum fjárheimildum jöfnunarsjóðs alþjónustu til Neyðarlínunnar, annars vegar fyrir árið 2024 og hins vegar árið 2025. Í lok árs 2024 fékk Neyðarlínan úthlutað úr sjóðnum 44,6 millj. kr. en í ár fékk Neyðarlínan 48,8 milljónir kr..  

Hér að neðan gefur að líta þá sendastaði skv. kostnaðaráætlun Neyðarlínunnar þetta árið. Samtals er heildarkostnaður vegna þessara verka áætlaður um 107,8 millj. kr.  án vsk. 

SendastaðurKostnaðurVerkstaðaVerklokLandssvæði
Munaðarnes8.355.112Lokið2024Vestfirðir, Árneshreppur
Vallarhús10.900.000Í framkvæmd2025Reykjanes, Suðurnesjabær, Hvalsnes
Dalsbú8.100.000Í framkvæmd2025Höfuðborgarsvæðið, Mosfellsbær, Mosfellsdalur
Fitjar12.200.000Í undirbúningi2025Vesturland, Skorradalshreppur, Skorradalur
Brennistaðir12.900.000Í undirbúningi2025Vesturland, Borgarbyggð, Flókadalur
Raufarfell12.000.000Í framkvæmd2025Suðurland, Rangárþing eystra, Undir Eyjafjöllum
Breiðavík11.100.000Í framkvæmd2025Vestfirðir, Vesturbyggð, Breiðavík
Sæból11.200.000Í undirbúningi2025Vestfirðir, Ísafjarðarbær, Ingjaldssandur
Vesturás/Fákshólar11.500.000Í undirbúningi2025Suðurland, Ásahreppur, Ásar
Flaga9.500.000Í undirbúningi2026Austurland, Múlaþing, Norðurdalur
Samtals

 

 

107.755.112