Hoppa yfir valmynd

Míla hf. sektuð fyrir ranga og ófullnægjandi upplýsingagjöf til Fjarskiptastofu

Fréttasafn
16. ágúst 2024

Míla hf. sektuð fyrir ranga og ófullnægjandi upplýsingagjöf til Fjarskiptastofu

Markaðsgreiningar eru mikilvægasta verkfæri fjarskiptaregluverksins til að stuðla að samkeppni á fjarskiptamarkaði. Markmið markaðsgreininga er að efla samkeppni með því að greina mögulegan skort á samkeppni og leggja viðeigandi kvaðir á þann aðila sem hefur umtalsverðan markaðsstyrk. Framkvæmd markaðsgreininga til að meta samkeppnisstöðuna á hinum ýmsu undirmörkuðum fjarskiptamarkaðarins á öllu landinu útheimtir viðmikla söfnun margvíslegra gagna og úrvinnslu á þeim af hálfu Fjarskiptastofu. Við slíka greiningu ber stofnuninni ekki einungis að meta samkeppnisstöðuna eins og hún stendur á þeim tímapunkti sem greiningin fer fram, heldur er stofnuninni einnig ætlað að horfa fram á veginn og meta líklega þróun á samkeppnistöðu og -aðstæðum til nánustu framtíðar (e. forward looking approach).

Ein veigamikil forsenda sem varðar þróun á samkeppnisaðstæðum eru breytingar á eignarhaldi á fjarskiptafyrirtækjum eða innviðum þeirra. Viðskipti með fjarskiptafyrirtæki eða einstaka fjarskiptainnviði getur haft áhrif markaðshlutdeildartölur, sérstaklega í einstökum sveitarfélögum og mögulega á landsvísu ef viðskipti eru stór. Kaupáform fjarskiptafyrirtækja á öðrum fjarskiptafyrirtækjum eða á einstökum innviðum þeirra geta því haft veruleg áhrif á þróun á samkeppnisstöðu og -aðstæður á fjarskiptamarkaði.

Þegar unnið er með upplýsingar sem geta haft veruleg áhrif á niðurstöðu stjórnsýslumála, eins og á við í markaðsgreiningum Fjarskiptastofu, er mikilvægt að afhentar upplýsingar frá aðilum séu réttar, fullnægjandi og uppfærðar til þess dags sem þær eru afhentar.

Þann 15. ágúst 2023 beindi Fjarskiptastofa fyrirspurn til Mílu hf., sem og annarra fjarskiptafyrirtækja, um möguleg kaupáform eða langtímaleigu á ljósleiðaranetum. Upphaflegu fyrirspurnina mátti skilja á þann veg að hún beindist eingöngu að staðbundnum ljósleiðaranetum á landsbyggðinni. Viðbrögð Mílu hf. voru á þann veg að óska eftir nánari skilgreiningu á gagnabeiðninni. Svar Fjarskiptastofu var á þá leið að óþarft væri að skilgreina einstök hugtök í þessu sambandi, þar sem beiðnin varðaði upplýsingar um möguleg kaup fjarskiptafyrirtækja á öllum ljósleiðaranetum á heimtaugamarkaði. Var upplýsingabeiðnin því áréttuð út frá þessum almennu og skýru forsendum. Samskipti við Mílu hf. héldu hins vegar áfram næstu daga og leiðbeiningar Fjarskiptastofu til félagsins virtust ekki skila árangri. Því taldi Fjarskiptastofa í tölvupósti frá 25. ágúst 2023 mikilvægt að skilgreina nákvæmlega hvað fælist í orðalagi um „kaupáform“, auk þess að enn var áréttað að beiðnin væri almenn og tæki til kaupa á öllum ljósleiðaranetum. Í sama tölvupósti var einnig leiðbeint um hvaða afleiðingar það hefði fyrir Mílu hf. ef upplýsingabeiðninni yrði ekki svarað, en í því sambandi var félagið minnt á heimild Fjarskiptastofu til að leggja á fjarskiptafyrirtæki stjórnvaldssekt fyrir ranga og ófullnægjandi afhendingu á upplýsingum til stofnunarinnar. Míla hf. staðfesti móttöku á tölvupósti stofnunarinnar og tjáði að málið yrði tekið til skoðunar, en engin frekari svör bárust hins vegar í framhaldinu.  

Þann 15. september 2023 gerist það að Míla hf. tilkynnir Fjarskiptastofu að sveitastjórn Skaftárhrepps hafi deginum áður samþykkt kauptilboð Mílu hf. í ljósleiðaranet í eigu sveitarfélagsins og falið sveitarstjóra að undirrita samning við félagið. Í ljósi þess að þessi viðskipti virtust eiga sér stað á sama tíma eða mjög nálægt þeim tíma sem Mílu hf. var skylt að upplýsa Fjarskiptastofa um öll áformuð kaup á ljósleiðaranetum taldi stofnunin fullt tilefni til þess að hefja rannsókn á því hvort félagið hefði mögulega brotið gegn upplýsingaskyldu sinni. Óskaði stofnunin eftir öllum viðeigandi samskiptum Mílu hf. við sveitarfélagið um þessi viðskipti. Eftir að hafa yfirfarið þau gögn sem Míla hf. afhenti kom m.a. í ljós formlegt bréf félagsins frá því í apríl 2023 til sveitafélagsins þar sem lýst var yfir áhuga á viðræðum um kaup á ljósleiðaranetinu og síðan formlegt kauptilboð til sveitarfélagsins frá því í júlí 2023. Það var mat Fjarskiptastofu að upplýsingar um þessi viðskipti féllu ótvírætt undir þá gagnabeiðni sem stofnunin hafði beint að Mílu hf. í ágúst það ár, sérstaklega undir þá afmörkun beiðninnar sem var nákvæmlega skilgreind með tölvupóstinum til félagsins frá 25. ágúst 2023. Mílu hf. hafi ekki getað dulist að félaginu hafi verið skylt að upplýsa Fjarskiptastofu um þessi viðskipti sem þá voru í bígerð. Það var hins vegar ekki gert þrátt fyrir ítrekaðar leiðbeiningar af hálfu Fjarskiptastofu til Mílu hf. og saknæmisstig háttseminnar var því metið talsvert hátt. Því hafi verið óhjákvæmilegt að leggja stjórnvaldssekt á Mílu hf. fyrir brot á upplýsingaskyldu sinni til Fjarskiptastofu og var fjárhæð sektar metin hæfileg 3.000.000 kr.          

Ákvörðun Fjarskiptastofu nr. 9/2024