Metfjöldi umsókna um netöryggisstyrki Eyvarar
Metfjöldi umsókna um netöryggisstyrki Eyvarar
Mikill áhugi var á netöryggisstyrkjum Eyvarar í nýafstaðinni úthlutun, en alls bárust 48 umsóknir um styrki. Þetta er mesti fjöldi umsókna sem borist hefur í úthlutun Eyvarar til þessa og endurspeglar vaxandi áhuga og aukinn kraft í netöryggismálum hér á landi.
Styrkveitingarnar voru staðfestar 19. janúar þegar Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra, undirritaði samninga um veitingu netöryggisstyrkja til 14 verkefna. Heildarupphæð styrkja nemur um 116 milljónum króna.
Um er að ræða þriðju styrkjaúthlutun Eyvarar á síðustu tveimur árum. Fjöldi umsókna undirstrikar bæði öflugt grasrótarstarf innan íslenska netöryggissamfélagsins og skýra þörf fyrir áframhaldandi stuðning við verkefni á þessu sviði.
„Áhugi á netöryggisstyrkjum Eyvarar hefur alltaf verið talsverður, en í þessari úthlutun bárust fleiri umsóknir en nokkru sinni fyrr. Það endurspeglar bæði öflugt grasrótarstarf innan íslenska netöryggissamfélagsins og skýra þörf fyrir aukið fjármagn til verkefna á þessu sviði. Það er einmitt hlutverk og vilji Eyvarar að styðja við nýsköpun og efla hæfni íslensks samfélags á sviði netöryggis,“ segir Hrannar Ásgrímsson, verkefnastjóri Eyvarar í fréttatilkynningu á vef verkefnisins.
Allar umsóknir um netöryggisstyrki Eyvarar eru metnar af fagráði sem gerir tillögu til stjórnar um úthlutun styrkja. Að fengnu samþykki stjórnar eru úthlutanir staðfestar af ráðherra og í kjölfarið gerðir samningar við styrkþega. Markmið styrkjanna er að efla netöryggisgetu Íslands og styrkja íslenskt netöryggissamfélag, meðal annars með virku og öflugu samstarfi á Evrópuvettvangi.
Eyvör-NCC er hæfnissetur Íslands á sviði netöryggis og er hluti af netöryggissviði Fjarskiptastofu. Verkefnið er styrkt af Evrópusambandinu í gegnum European Cybersecurity Competence Centre (ECCC).
Styrkþegar í þessari úthlutun eru:
- Fjölmiðlanefnd
- Indó sparisjóður
- Mitoflux
- Varðberg
- Gagnaglímufélag Íslands
- Ríkislögreglustjóri
- Secure Code Warrior
- Tryggingastofnun
- Tern Systems
- Maven
- Slökkvilið höfuðborgarsvæðis
- Strandabyggð
- Atlas Cloud
- Dent & Buckle
Myndir sýnir frá vinstri: Hrannar Ásgrímsson, verkefnastjóra Eyvarar, Luca Tagliaretti, framkvæmdastjóra ECCC, Hr. Eyjólf Ármannsson, innviðaráðherra og Hrafnkel V. Gíslason, forstjóra Fjarskiptastofu.