Könnun á skráningu símaskrárupplýsinga – Óskum um skráningu fer fækkandi
Könnun á skráningu símaskrárupplýsinga – Óskum um skráningu fer fækkandi
Með setningu nýrra fjarskiptalaga árið 2022 var ekki lengur talin þörf á að leggja alþjónustuskyldu á aðila til að viðhalda heildstæðri símaskrá yfir notendur, þar sem nú ríkir samkeppni á markaði fyrir upplýsingaþjónustuveitur um símanúmer. Þetta var í samræmi við þróun í Evrópu, þar sem samkeppni hafði einnig skapast á þessum markaði. Þá hafði ný tilskipun ESB (2018/1972) fellt þessa tegund þjónustu úr alþjónustu nema sérstök þörf væri talin á því í viðkomandi ríki. Hérlendis var talið mikilvægt að tryggja áfram forsendur fyrir virkri samkeppni, þannig að aðilar á markaði fyrir upplýsingaþjónustuveitur og útgefendur símaskráa, ásamt nýjum aðilum, hefðu jafnan aðgang að sömu grunnupplýsingum um notendur. Slíkar upplýsingar, þ.e. númera- og vistfangaskrár fjarskiptafyrirtækja, eru forsenda fyrir starfsemi á þessum markaði. Var því áfram mælt fyrir um skyldu fjarskiptafyrirtækja sem úthluta númerum að halda númera- og vistfangaskrár sem eru ætlaðar fyrir aðila sem starfa á markaði fyrir símaskrár og upplýsingaþjónustuveitur.
Í 1. mgr. 93. gr. fjarskiptalaga er kveðið er á um rétt endanotanda í númeratengdri fjarskiptaþjónustu til að ákveða hvort persónuupplýsingar um hann séu birtar í opinberri símaskrá, prentaðri eða rafrænni, eða notaðar fyrir upplýsingaþjónustuveitur um símanúmer. Það er því ávallt notandinn sem hefur þann rétt að ákveða sjálfur hvort hann sé skráður í þessum skrám. Jafnframt er skýrt að fjarskiptafyrirtæki, sem úthlutar endanotanda símanúmeri, ber að upplýsa hann um þennan rétt, hvaða persónuupplýsingar um ræðir og hvernig þær eru unnar, þar á meðal miðlun þeirra, áður en skráning fer fram í númera- og vistfangaskrá fyrirtækisins. Ákvæðið leggur því þá skyldu á fjarskiptafyrirtæki að halda sérstaka númera- og vistfangaskrá í þessum tilgangi. Um er að ræða sértæka skrá sem er sérstaklega ætluð til miðlunar upplýsinga um notendur til aðila sem starfa á markaði fyrir opinberar símaskrár og upplýsingaþjónustuveitur.
Fjarskiptastofa hefur nýlega lokið könnun á skráningu símaskráaupplýsinga. Markmið hennar var að kanna hvort fjarskiptafyrirtækin væru að upplýsa notendur um rétt þeirra samkvæmt 93. gr. fjarskiptalaga og jafnframt að greina hlutfall nýrra viðskiptavina á tilteknu tímabili sem höfðu óskað eftir því að láta skrá sig í símaskrá. Í því skyni kallaði stofnunin eftir tölfræðiupplýsingum frá fjórum fjarskiptafyrirtækjum sem úthluta númerum til viðskiptavina sinna.
Niðurstöður könnunarinnar sýndu að aðeins eitt af fjórum fyrirtækjum sagðist hafa það sem hluta af ferli sínu að spyrja nýja viðskiptavini hvort þeir vildu vera skráðir í símaskrá. Hins vegar var tekið fram að þetta ætti aðeins við um nýskráningar, en ekki þegar viðskiptavinir flytja viðskipti sín frá öðru fyrirtæki. Sama fyrirtæki svaraði því jafnframt að ef viðskiptavinur samþykkti skráningu væri honum ekki boðið að velja sér upplýsingaþjónustuveitanda.
Annað fyrirtæki útskýrði að þegar viðskiptavinur samþykkir að koma í viðskipti birtist texti sem upplýsir um að þeir sem vilja vera í símaskrá geti fært slíkar upplýsingar sjálfir inn á þjónustuvef fyrirtækisins. Þannig virðist sem nýir viðskiptavinir séu ekki sérstaklega spurðir af starfmanni hvort þeir vilji vera skráðir í símaskrá en fá að sama skapi upplýsingar um hvernig þeir geti sjálfir skráð sig á þjónustuvef fyrirtækisins.
Fjarskiptastofa kallaði einnig eftir upplýsingum um fjölda nýrra viðskiptavina á umræddu tímabili og hvaða hlutfall þeirra hefði verið skráð í símaskrá. Þrjú af fjórum fyrirtækjum höfðu mjög lágt skráningarhlutfall, á bilinu 0–2%, en eitt fyrirtæki skar sig úr með 10,5% hlutfall skráðra viðskiptavina.
Eina fyrirtækið sem hefur það sem hluta af ferli sínu að spyrja nýja viðskiptavini hvort þeir vilji vera skráðir í símaskrá, hafði hlutfall nýskráðra viðskiptavina sem skráðu sig í símaskrá sem nam um 1 %. Hin þrjú fyrirtækin sem svöruðu neitandi, þ.e. að þau spyrðu ekki viðskiptavini sína sérstaklega um skráningu, sýndu skráningarhlutföll sem voru 0%, 2% og 10,5%. Þessi gögn gefa til kynna að jafnvel þar sem einhverjar verklagsreglur eru til staðar sé fjöldi skráningarbeiðna almennt lágur og benda til bæði lítillar eftirspurnar notenda um skráningu í símaskrá og skorts á skýru eða markvissu ferli í flestum tilvikum.
Könnunin sýnir fram á að ferlið við að skrá viðskiptavini í símaskrá virðist almennt ómarkvisst og takmarkað hjá fjarskiptafyrirtækjum. Þrátt fyrir að eitt fyrirtæki viðhafi verklag um að spyrja nýskráða viðskiptavini sérstaklega, endurspegla niðurstöðurnar lágt hlutfall skráðra, jafnvel hjá því. Hin þrjú fyrirtækin sýna sömuleiðis lág skráningarhlutföll. Þessar niðurstöður benda til þess að skráning í símaskrá sé ekki algeng meðal nýrra viðskiptavina og að eftirspurn eftir þessari þjónustu sé verulega lægri en tíðkaðist áður fyrr.
Í framhaldinu hyggst Fjarskiptastofa gera hlutaðeigandi fjarskiptafyrirtækjum, hverju fyrir sig, grein fyrir niðurstöður könnunarinnar og leiðbeina þeim um skyldur þeirra, að óbreyttum lögum, til að fræða nýja viðskiptavini um rétt sinn að vera skráða í símaskrá og hafa milligöngu um skráningu þeirra sé þess óskað.