Hoppa yfir valmynd

Íslenskur fjarskiptamarkaður í tölum - Tölfræðiskýrsla Fjarskiptastofu fyrir árið 2024 komin út

Fréttasafn
20. maí 2025

Íslenskur fjarskiptamarkaður í tölum - Tölfræðiskýrsla Fjarskiptastofu fyrir árið 2024 komin út

Tvisvar á ári safnar Fjarskiptastofa upplýsingum frá skráðum fjarskiptafyrirtækjum hér á landi um ýmsar stærðir í rekstri og þjónustu á sviði fjarskipta. Upp úr þeim tölum vinnur stofnunin tölfræðiskýrslur sem sýna upplýsingar um helstu stærðir og fyrirtæki á íslenskum fjarskiptamarkaði. Markmiðið er að bæta upplýsingagjöf og auka gagnsæi á þessum markaði og eru skýrslur stofnunarinnar í samræmi við þær skýrslur sem systurstofnanir Fjarskiptastofu í nágrannalöndum okkar gefa út. 

Skýrslan sem nú er birt sýnir tölfræði um fjarskiptamarkaðinn fyrir árið 2024. Hún inniheldur tölulegar upplýsingar um helstu þætti á markaðnum og samanburð við stöðuna á árunum á undan. Skýrslunni er skipt upp eftir fastanetinu, farsímanetinu, föstum internettengingum, pakkaáskriftir og að síðustu veltu og fjárfestingu á fjarskiptamarkaði. 

Hægt er að skoða gögnin frá hinum ýmsu sjónarhornum á Gagnatorgi Fjarskiptastofu.
Gagnatorginu er skipt í 4 yfirflokka; farsímanet, breiðband, IPTV og fastanet og þar undir eru 9 flokkar sem hægt er að skoða útfrá t.d. tímabilum og þjónustuveitendum.

Meðal helstu tölulegu upplýsinga um íslenska fjarskiptamarkaðarins fyrir árið 2024 má nefna: 

Þróun fyrri ára innan talsíma heldur áfram þar sem bæði notendum og mínútum fækkar milli ára,  áskrifendum að heimasíma fækkar um 16,9% milli ára og mínútum fækkar um 14,1%. Síminn er stærsta fyrirtækið á markaði fyrir heimasíma með rúm 62% hlutdeild í lok árs 2024.  

Heildarfjöldi farsímaáskrifta fjölgar lítillega milli ára eða um 1,7%. Fjölgun er í samningsbundnum áskriftum en fyrirfram greiddum áskriftum fækkar hins vegar. Fjöldi mínútna úr farsímum var 1.079 millj. mínútna á árinu 2024 en var fyrir sama tímabil árið á undan um 1.085 millj. mínútna og fækkar því fjöldi mínútna milli ára um 0,6%.

Gagnamagn á farsímaneti heldur áfram að aukast þótt dregist hafi úr aukningunni en hún var tæp 18,1% milli ára og eins og undanfarin ár er aukningin aðallega í tengslum við innleiðingu á 5G.

Internettengingum fjölgar lítillega milli ára, en mikil aukning er í ljósleiðaratengingum samhliða fækkun í xDSL tengingum. Í lok árs 2024 voru ljósleiðaratengingar um 93% allra internettenginga og er fjöldi ljósleiðaratenginga nú um 138 þús. tengingar en xDSL tengingar voru einungis um tæp 10. Þús. 

Heildargagnamagn á fastaneti jókst um 1,6% milli ára og er um 90% gagnamagnsins vegna niðurhals en 10% vegna upphals. 

Tölfræðiskýrslan í heild
Ásamt skýrslunni er birt Excel skjal með bakgrunnsupplýsingum skýrslunnar í töflum og myndum.