Hoppa yfir valmynd

Íslenskur fjarskiptamarkaður í tölum - Tölfræðiskýrsla Fjarskiptastofu fyrir árið 2023 komin út

Fréttasafn
16. maí 2024

Íslenskur fjarskiptamarkaður í tölum - Tölfræðiskýrsla Fjarskiptastofu fyrir árið 2023 komin út

Tvisvar á ári safnar Fjarskiptastofa upplýsingum frá skráðum fjarskiptafyrirtækjum hér á landi um ýmsar stærðir í rekstri og þjónustu á sviði fjarskipta. Upp úr þeim tölum vinnur stofnunin tölfræðiskýrslur sem sýna upplýsingar um helstu stærðir og fyrirtæki á íslenskum fjarskiptamarkaði. Markmiðið er að bæta upplýsingagjöf og auka gagnsæi á þessum markaði og eru skýrslur stofnunarinnar í samræmi við þær skýrslur sem systurstofnanir Fjarskiptastofu í nágrannalöndum okkar gefa út. 

Skýrslan sem nú er birt sýnir tölfræði um fjarskiptamarkaðinn fyrir árið 2023. Hún inniheldur tölulegar upplýsingar um helstu þætti á markaðnum og samanburð við stöðuna á árunum á undan. Skýrslunni er skipt upp eftir fastanetinu, farsímanetinu, föstum internettengingum, pakkaáskriftir og að síðustu veltu og fjárfestingu á fjarskiptamarkaði. 

Hægt er að skoða gögnin frá hinum ýmsu sjónarhornum á Gagnatorgi Fjarskiptastofu.
Gagnatorginu er skipt í 4 yfirflokka; farsímanet, breiðband, IPTV og fastanet og þar undir eru 9 flokkar sem hægt er að skoða útfrá t.d. tímabilum og þjónustuveitendum.

Meðal helstu tölulegu upplýsinga um íslenska fjarskiptamarkaðarins árið 2023 má nefna: 

Þróun fyrri ára innan talsíma heldur áfram þar sem bæði notendum og mínútum fækkar milli ára,  áskrifendum að heimasíma fækkar um 11,3% milli ára og mínútum fækkar um 16,8%. Síminn er stærsta fyrirtækið á markaði fyrir heimasíma með rúm 67% hlutdeild í lok árs 2023. PSTN línum fækkar ört milli ára en stefnt er að lokun kerfisins á árinu 2024.  

Heildarfjöldi farsímaáskrifta fjölgar milli ára eða um 5,2%. Fjölgun er í samningsbundnum áskriftum en fyrirfram greiddum áskriftum fækkar hins vegar. Fjöldi mínútna úr farsímum var 1.085 millj. mínútna á árinu 2023 en var árið á undan um 1.144 millj. mínútna og er fækkun mínútna milli ára því  um 5,2%.

Gagnamagn á farsímaneti heldur áfram að aukast þótt dregist hafi úr aukningunni en hún var 20,9% milli ára og eins og undanfarin ár er aukningin í tengslum við innleiðingu á 4G og 5G. Í farsímanetum er hlutfallslega meira gagnamagn notað í símum en í öðrum tækjum sem eru eingöngu fyrir gagnanotkun, t.d. spjaldtölvum eða 4G og 5G netbúnaði.  

Internettengingum fjölgar lítillega milli ára, en mikil aukning er í ljósleiðaratengingum samhliða fækkun í xDSL tengingum, í lok árs 2023 voru ljósleiðaratengingar tæp 89% allra internettenginga og er fjöldi ljósleiðaratenginga nú um 129 þús. tengingar. 

Heildargagnamagn á fastaneti jókst um rúm 6% milli ára og er um 91% gagnamagnsins vegna niðurhals en 9% vegna upphals. 

Áskrifendur með sjónvarp yfir IPTV voru 79.317 í lok árs 2023, en voru 79.968 árið á undan og hefur því fækkað um tæp 1% frá árinu á undan. 

Heildarfjöldi pakkaáskrifta jókst á árinu 2023 eða um 7,3% og eru þrjár þjónustur algengastar. 

Velta á fjarskiptamarkaði jókst á árinu 2023, tekjur af heimasíma og aðrar tekjur fóru lækkandi en tekjur af fastaneti, farsímarekstri, gagnaflutningi og internetþjónustu, sjónvarpsþjónustu og annarri fjölmiðlun farið hækkandi. 

Fjárfesting á fjarskiptamarkaði er aðallega í fastaneti, m.a. vegna lagningar ljósleiðara og gagnaflutningi og internet þjónustu ásamt farsímarekstri. 

Tölfræðiskýrslan í heild

Bakgrunnsupplýsingar, töflur og myndir (Excel)