Hoppa yfir valmynd

Innviðaráðuneytið kallar eftir sjónarmiðum um framtíð fjarskipta og netöryggis

Fréttasafn
11. ágúst 2026

Innviðaráðuneytið kallar eftir sjónarmiðum um framtíð fjarskipta og netöryggis

Fjarskiptastofa vekur athygli á að Innviðaráðuneytið hefur hafið forsamráð um efnistök fyrirhugaðrar grænbókar um fjarskipti og netöryggi. Markmið samráðsins er að fá fram sjónarmið almennings, fyrirtækja, opinberra aðila, sveitarfélaga, fræðasamfélags og annarra hagsmunaaðila um hvaða viðfangsefni, áskoranir og tækifæri eigi að vera í brennidepli við mótun framtíðarstefnu á þessum mikilvægu sviðum.

Forsamráðið fer fram áður en drög að grænbók verða unnin. Með því vill ráðuneytið tryggja að umræðan byggi frá upphafi á fjölbreyttum sjónarmiðum og reynslu þeirra sem nýta, reka eða hafa hagsmuni af fjarskiptum og netöryggi. Samhliða stendur til að endurskoða gildandi netöryggisstefnu stjórnvalda og móta nýja stefnu og aðgerðaáætlun á sviði fjarskipta. Til skoðunar er hvort unnin verði ein samþætt stefna eða tvær aðskildar en samhæfðar stefnur.

Meðal þeirra viðfangsefna sem ráðuneytið leggur til að fjallað verði um eru áfallaþol og öryggi fjarskiptainnviða, sæstrengir og alþjóðlegar tengingar, neyðarsamskipti, þróun farneta og tíðnimál, netöryggi mikilvægra innviða, innleiðing NIS2 tilskipunarinnar, fjarskiptasvik og netglæpir, rafrænar auðkenningar og traustþjónusta, samkeppni og fjárfestingar, mannauður og nýsköpun, auk stafræns fullveldis og samkeppnishæfni Íslands.

Ráðuneytið óskar sérstaklega eftir sjónarmiðum um hvort upptalning þessara viðfangsefna sé nægilega skýr og vel afmörkuð, hvaða mál eigi að hafa mest vægi á næstu árum og hvaða gögn, greiningar eða reynsla geti nýst við gerð grænbókarinnar. Þá er einnig leitað eftir áliti á því hvort fjarskipti og netöryggi skuli falla undir eina sameiginlega stefnu eða tvær samhæfðar stefnur.

Að loknu samráðinu verður unnið úr innsendum umsögnum og ábendingum. Niðurstöðurnar verða nýttar við gerð grænbókar sem síðar verður birt til sérstaks samráðs áður en endanleg stefna og aðgerðaáætlun stjórnvalda á sviði fjarskipta og netöryggis verða mótaðar.

Nánari upplýsingar og skil umsagna fara fram í Samráðsgátt stjórnvalda. Umsagnarfrestur er til 21. ágúst 2026.