Hoppa yfir valmynd

Innköllun snjóðflóðaýla frá PIEPS

Fréttasafn
29. nóvember 2024

Innköllun snjóðflóðaýla frá PIEPS

Fjarskiptastofa vekur athygli á innköllun á PIEPS Pro IPS og PIEPS SET PRO IPS snjóðflóðaýla frá austuríska fyrirtækinu PIEPS.

Ástæða innköllunarinnar, sem er að frumkvæði framleiðanda, er dæmi um að ekki hafi kviknað á tækinu vegna galla í tengingu þess við tiltekna tegund AAA battería, en aflgjafi tækisins eru þrjú AAA batterí.

Tækið hefur verið selt í stykkjatali eða fleiri saman sem snjóflóðavarnapakki. Talið er mögulegt að allt að 26 stykki af vörunni hafi verið seld til Íslands.

 Nánari upplýsingar má finna á sameiginlegri upplýsingasíðu íslenskra eftirlitsstjórnvalda www.voruvaktin.is þar sem finna má tilkynninguna með því að smella á þennan hlekk: Tilkynningar | Vöruvaktin